Skálholtshátíðin 2026: Helgihald, Tónlist og Fyrirlestrar um Arfleifð Ninu Tryggvadóttir
- Jul 22
- 1 min read
Updated: Jul 24
Skálholtshátíð sem stóð yfir dagana 18. – 19. júlí er nú lokið. Dagskráin var glæsileg að vanda en Solveig Lára Guðmundsdóttir fyrrverandi vígslubiskup á Hólum stýrði hátíðinni í ár. Biskup Íslands Guðrún Karls Helgudóttir var viðstödd hátíðarhöldin og predikaði í hátíðarmessu.
Hátíðin var mjög vel sótt, þar sem meðal annars fóru fram helgiathafnir, tónleikar og fyrirlestrar, þar á meðal erindi Aðalheiðar Valgeirsdóttur myndlistarmanns og listfræðings
Í erindi sínu sem bar yfirskriftina Til móttöku og blessunar
fjallaði Aðalheiður um Nínu Tryggvadóttur og altarismynd hennar í tilefni þess að í ár eru 60 ár frá því að hún var vígð af Sigurbirni Einarssyni þáverandi biskupi. Fyrirlesturinn var á vegum Skálholtsfélagsins hins nýja, sem bauð upp á veitingar að honum loknum.
Strengjasveit undir stjórn Páls Palomares lék á hátíðartónleikum í kirkjunni, og kór Skálholtsdómkirkju söng við athafnir og á hátíðardagskránni undir traustri stjórn Jóns Bjarnasonar.
Um helgina gengu pílagrímar frá Reynivöllum í Kjós í Skálholt sem er fjögurra daga gönguleið. Við inngöngu í Skálholtsdómkirkju við upphaf hátíðarguðsþjónustunnar var safnast saman við skírnarfontinn þar sem sunginn var söngur pílagrímsins Fögur er foldin.
Á laugardagskvöldið var borinn fram í Hvönn sameiginlegur kvöldverður í Skálholtsskóla.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir flutti hátíðarræðu á sunnudeginum. Þar fjallaði hún m.a. um breytta stöðu heimsmála.
Allir eru velkomnir á Skálholtshátíð og í sama anda hlökkum við til að taka á móti gestum á næsta ári.
Á þessum myndum er stutt samantekt frá þessum fallegu dögum.




Comments