Möguleg tímabundin lokun Skálholtsdómkirkju vegna framkvæmda
- Herdís Friðriksdóttir
- 5 days ago
- 1 min read
Framkvæmdir við drenlögn eru hafnar við Skálholtsdómkirkju. Grafið verður meðfram veggjum kirkjunnar og drenlögn lögð niður til að koma í veg fyrir raka í kjallara kirkjunnar.
Verkið er unnið af JH verktökum og mun taka um 2 vikur. Minjastofnun Íslands hefur fundað með ráðsmanni og verktaka og lagt blessun sína yfir verkið, en fara þarf varlega þegar um menningarminjar er að ræða.
Talsvert rask er af framkvæmdunum og eru líkur á að loka þurfi kirkjunni í einhvern tíma í þessari viku. Framkvæmdasvæðið verður vel afgirt svo ekki verði slys á fólki.
Snjóbræðslukerfi er óvirkt sökum framkvæmdanna en unnið er að snjómokstri og reynt að tryggja aðgengi að kirkjunni eins og unnt er.
Af þessum sökum eru gestir beðnir að fara sérstaklega varlega umhverfis kirkjuna þessa vikuna. Stefnt er að því að framkvæmdum ljúki í næstu viku.



