Laugardaginn 26. október var að vanda leiðsögn um Skálholtsdómkirkju og staðinn.
Að þessu sinni var boðið upp á vandaðan fyrirlestur Halldóru Kristinsdóttur um skörunginn og snillinginn Valgerði Jónsdóttur (1771-1856), biskupsfrú í Skálholti.
Á sunnudaginn var svo 350 ára ártíð Hallgríms Péturssonar minnst í hámessu, með sérstakri áherslu á sálminn ástkæra Um dauðans óvissa tíma, sem tengist staðnum órjúfanlegum böndum.
Valgerður Jónsdóttir biskupsfrú
Halldóra er sérfræðingur á handritasafni Landsbókasafnsins og hefur rannsakað ævi og störf Valgerðar, sérstaklega út frá bréfum sem hún skrifaði sjálf og þeim sem henni voru send. Í fyrirlestrinum kom Halldóra inn á umsvif og atvinnurekstur Valgerðar, sem og fjölbreytt og stórbrotið lífshlaup hennar en hún giftist tveimur biskupum, þeim Hannesi Finnssyni og Steingrími Jónssyni.
Mikill aldursmunur var á þeim Hannesi og varð Valgerður ekkja eftir hann aðeins 25 ára gömul. Þá stóð Valgerður ein fyrir búi í Skálholti um áratugs skeið áður en hún giftist Steingrími, sem síðar varð biskup yfir Íslandi.
Í fyrirlestrinum kom fram að Valgerður var yfirstéttarkona, af ríkum ættum, vel menntuð og gáfuð. Hún safnaði miklum auði, stóð í viðskiptum og var ein ríkasta kona Íslands á sínum tíma. En hún var líka dóttir, eiginkona, móðir og amma.
Heimildir um Valgerði sýna líka vel tíðaranda og aðstæður allar á fyrri hluta 19. aldar á Íslandi. Fyrirlestrasalurinn í Skálholtsskóla var þéttsetinn, bæði af heimafólki og lengra að komnum. Að fyrirlestrinum loknum var haldið til kirkjunnar sjálfrar og minjar tengdar Valgerði skoðaðar.
Um dauðans óvissa tíma
Á sunnudeginum var svo haldin Hallgrímsmessa í tilefni af 350 ára ártíð Hallgríms Péturssonar, eins og á svo mörgum stöðum.
Í Skálholti var athyglinni sérstaklega beint að sálminum ástkæra Um dauðans óvissa tíma sem Hallgrímur gaf Ragnheiði Brynjólfsdóttur í eiginhandriti, og hefur síðan verið sunginn við útfarir og kveðjustundir flestra Íslendinga. Í prédikun voru vers sálmsins íhuguð og útlögð. Sungnir voru aðrir sálmar eftir Hallgrím enda mikill fjársjóður í því safni.
Kristín Þórunn Tómasdóttir er sóknarprestur í Skálholtsprestakalli.
“Það er alltaf stórkostlegt að fá að þjóna í Skálholtsdómkirkju og þar finnum við kall hjartans til að mætast í tilbeiðslu og lofsöng. Það var sérstaklega gefandi að geta lyft upp minningu Hallgríms Péturssonar á þessum degi og fá að þakka fyrir gjafir hans sem hafa nært trúarlíf okkar Íslendinga, í söng, íhugun og bænum” segir sr. Kristín Þórunn.
Messað er hvern helgan dag í Skálholtsdómkirkju, kl. 11:00 á sunnudögum.
Fréttin er unnin upp úr frétt á kirkjan.is. Myndir frá Annríki og víðar.
Comentarios