top of page

Barnamenningardagur haldinn í Skálholti 10. maí- kl 11:00 - 15:00.

  • Apr 24
  • 3 min read

Updated: May 2



Barnamenningardagur í Skálholti

Sunnudaginn 10. maí nk verður Barnamenningardagur í Skálholti. Boðið verður upp á lifandi og skemmtilega dagskrá fyrir börn og fjölskyldur þeirra. Dagskráin er ókeypis og öll velkomin. Dagskráin hentar börnum frá aldrinum 6 - 12 ára en börn verða í fylgd foreldra sinna. Veitingaastaðurinn Hvönn verður opinn en þar verða ilmandi vöfflur yfir daginn.


Dagskráin hefst kl 11 á barna og fjölskyldumessu en kl 12 hefst dagskrá þar sem hægt er að velja mismunandi stöðvar sem taka um 45 mín hver. Hægt er að velja um fornleifaskóla barnanna, leiðsögn um Skálholtsstað með rithöfundi bókanna um Úlf og Eddu sem gerast einmitt í Skálholti, eða fara í langspilsvinnusmiðju í Þorláksbúð. Allan daginn verður boðið upp á útileiki á túninu við kirkjuna.


Dagskrá:

11:00–11:45

Barna- og fjölskyldumessa í Skálholtsdómkirkju


12:00 – 15:00 Fjölskyldur fara frjálst á milli stöðva – hver stöð tekur um 45 mínútur

  • Langspilsvinnusmiðja í Þorláksbúð

  • Leiðsögn um Skálholt með höfundi bókanna um Úlf og Eddu

  • Fornleifaskóli barnanna – mæting við kirkjuna

  • Útileikir og fjölskylduskemmtun – á túninu við kirkjuna


Veitingar: Veitingastaðurinn Hvönn með nýbakaðar vöfflur allan daginn!


Langspilsvinnusmiðja í Þorláksbúð

Eyjólfur Eyjólfsson tónlistarmaður býður börnunum að koma í Þorláksbúð og læra um langspil, elsta hljóðfæri Íslendinga. Í langspilssmiðjum læra börnin undirstöðuatriðin í langspilsleik eins og stramm og plokk með álftafjöðrum. Einnig verður boðið upp á að strjúka strengina með hrosshársbogum. Nemendur fræðast um langspilið í sögulegu, menningarlegu og alþjóðlegu samhengi, með sérstakri áherslu á gamla bændasamfélagið og baðstofumenninguna. Kennd verða vel valin lög úr þjóðlagasafni sr. Bjarna Þorsteinssonar sem verða undir lok smiðjunnar flutt við langspilsleik þátttakenda.

Smiðjunum er einnig ætlað að vekja nemendur til umhugsunar um menningararf og alþýðumenningu fyrri tíðar. Langspilið, fyrirbæri sem tilheyrði gamla bændasamfélaginu, er fært í nútímahorf og verður þannig að lifandi menningararfi sem ferðast þvert á landamæri. Um leið og nemendur fræðast um íslenska afbrigðið af bordún-sítar, fá þau innsýn í víðfeðman heim alþýðumenningar um allar álfur.

 

Leiðsögn um Skálholt með höfundi bókanna um Úlf og Eddu

Kristín Ragna Gunnarsdóttir rithöfundur bókanna um Úlf og Eddu leiðir börn um Skálholtsstað, inn í Þorláksbúð og í undirgöngin. Kristín hefur skrifað 3 bækur um Úlf og Eddu sem dvelja í Skálholti. Þegar þau fara um undirgöngin, þá enda þau í goðheimum þar sem þau lenda í ýmsum ævintýrum. Bækurnar eru skemmtileg blanda af sögupersónum úr Skálholti og  norrænni goðafræði.

                             

Fornleifaskóli barnanna

Heiðdís Einarsdóttir kennaranemi fræðir börn um fornleifar í Skálholti og leiðir þau um safnið í kjallaranum þar sem þau skoða steinkistu Páls Jónssonar og undirgöngin. Þau ganga um fornleifasvæðið sem sýnir húsakynni frá 17 og 18 öld. Að lokum fá börnin sjálf að grafa eftir fornminjum og læra hvernig á að skrásetja gripina og búa þá til geymslu.

              

Útileikir

Ungmennaliðar frá KFUM og K bjóða upp á skemmtilega útileiki fyrir börn á aldrinum 6 – 12 ára. Börnin mæta á túnið við kirkjuna og taka þátt í leikjunum.

 

Veitingastaðurinn Hvönn

Á Veitingastaðnum Hvönn í Skálholti verður boðið upp á barnamatseðil allan daginn. Hægt verður að kaupa veitingar og bent er sérstaklega á að þar verða ilmandi nýbakaðar vöfflur allan daginn. Í bókunum um Úlf og Eddu fá börnin sér einmitt alltaf vöfflur á veitingastaðnum í Skálholti eftir ævintýri sín á staðnum.


Athugið: Dagskráin er ætluð börnum 6–12 ára og börn skulu vera í fylgd fullorðinna

Verið velkomin í Skálholt – dagur fullur af leik, fræðslu og skemmtun!


Aðgangur ókeypis og öll hjartanlega velkomin!


Dagskráin er styrkt af Uppbyggingasjóði Suðurlands





 
 
 

Comments


bottom of page