Meðvirknisnámskeið í Skálholti
Meðvirkninámskeiðin í Skálholti hafa vakið mikla athygli og hefur þátttakan verið afburðagóð frá fyrsta námskeiðinu sem haldið var í nóvember 2009.
Umsjón með námskeiðinu hefur Sr. Anna Sigríður Pálsdóttir.
Námskeiðið hefst kl. 10.00 á mánudegi og því lýkur um kaffileytið á föstudegi. Hámarksfjöldi þátttakenda er 20 manns og vænta má biðlista á námskeiðið. Hægt er að skrá sig hér fyrir neðan.
Námskeiðsgjald fyrir einstakling í einstaklingsherbergi með sturtu og salerni og fullu fæði í fimm daga er aðeins 135.000 kr. Farið er fram á 50.000 kr staðfestingargreiðslu.
Hægt er að skipta greiðslum í tvo til þrjá mánuði.
Þú getur séð alla væntanlega viðburði í Skálholti undir viðburðar hlekknum: https://www.skalholt.is/vidburdir