UPPSELT !! Tónleikar KK, Maggi Eiríks og Pálmi Gunnars í Skálholtskirkju - Uppselt er á viðburðinn
UPPSELT!! Tónleikarnir Lög, ljóð og lygasögur í Skálholti 31. júlí. Dægurlagadrengirnir KK, Pálma Gunnars og Magga Eiríks flytja sín bestu og vinsælustu lög. Uppselt er á tónleikana. Veitingahúsið Hvönn býður uppá rétti á tilboði fyrir tónleikagesti.


TÍMI & STAÐSETTNING
31. júl. 2022, 20:00 – 21:30
Skálholtskirkja, 806, Iceland
UM VIÐBURÐINN
!! ATH UPPSELT ER Á ÞESSA TÓNLEIKA !!
Tónleikarnir Lög, ljóð og lygasögur með KK, Pálma Gunnars og Magga Eiríks í Skálholtskirkju 31. júlí
Dægurlagadrengina KK, Pálma Gunnars og Magga Eiríks þarf ekki að kynna fyrir mörgum enda búnir að vera í framvarðasveit íslenskrar tónlistarsögu í marga áratugi.
Það sem þarf hins vegar að kynna og koma á framfæri er óvænt samstarf þessa þriggja aðila innan tónleikasenunnar.
Sunnudaginn 31. júlí ætla þeir að snúa bökum saman og spila sín bestu og vinsælustu lög í Skálholtskirkju
Af nægu er heldur betur að taka og má búast við gríðarlega skemmtilegum tónleikum smekkfullum af bestu tónlistarperlum Íslands.
Þeim til halds og trausts verður Mezzoforte-maðurinn Eyþór Gunnarsson.
Veitingahúsið Hvönn í Skálholti býður upp á rétti á tilboðsverði fyrir tónleikagesti. Pantið borð í síma 486 8870 eða á hotelskalholt@skalholt.is