top of page

Söguganga og menningardagskrá 7. nóvember, degi herra Jóns Arasonar

Menningardagskrá í Skálholti 7. nóvember, á degi herra Jóns Arasonar með sögugöngu sr. Kristjáns, kvöldverði á Hvönn (ekki gleyma að bóka borð!), menningardagskrá Skálholtsdómkirkju með Skálholtskórnum og Jóni og blysför að minnisvarðanum. Heitt súkkulaði í boði Skálholtsstaðar eftir blysförina.

Skráningu á viðburðinn er lokið
Sjá aðra viðburði
Söguganga og menningardagskrá 7. nóvember, degi herra Jóns Arasonar
Söguganga og menningardagskrá 7. nóvember, degi herra Jóns Arasonar

TÍMI & STAÐSETTNING

07. nóv. 2022, 17:00 – 21:00

Skálholt, 806 Skálholt, Iceland

UM VIÐBURÐINN

Þann 7. nóvember árið 1550 var herra Jón Arason, biskup á Hólum, tekinn af lífi í Skálholti ásamt tveimur sonum sínum, Ara lögmanni og sr. Birni. Markaði það upphaf siðaskipta. 

Á þessum degi er alltaf boðið upp á menningardagskrá í Skálholtsdómkirkju en í ár verður farið í sögugöngu um leið Þorláks helga. Sr. Kristján Björnsson vígslubiskup leiðir hópinn eftir Þorláksleið en gera má ráð fyrir að gangan taki 2 klst. Gengið er um Skálholtsbúðir, niður að Stekkatúni við Hvítá og yfir að Þorlákshver við Brúará. Gengið er eftir Skólavegi heim aftur. Gangan er í heild um 6-7 km. 

Dagskrá:

17:00 Söguganga - mæting við Skálholtskirkju - gangan tekur um 2 klst.

19:00 Tveggja rétta kvöldverður á veitingastaðnum Hvönn í Skálholti - (sjá matseðil og verð neðar á síðunni.)

20:00 Menningardagskrá og tónleikar í Skálholtsdómkirkju. Skálholtskórinn syngur undir stjórn Jóns Bjarnasonar organista. Ljóð herra Jóns Arasonar eru lesin upp á milli tónlistaratriða. 

20:45 Gengið með blys að minnisvarðanum um herra Jón Arason. Endað á Veitingastaðnum Hvönn í heitu súkkulaði með rjóma í boði Skálholtsstaðar.

Tveggja rétta kvöldverður á Veitingastaðnum Hvönn eftir gönguferðina. Nauðsynlegt er að panta kvöldverð með því að senda póst á hotelskalholt@skalholt.is eða hringja í síma 486 8870

Forréttur: Nauta carpaccio með paprikusósu, kimchi, svörtum pipar og sjávarsalti - 2190 kr.

Aðalréttur: Smjörsteikt kjúklingabringa með appelsínu soðsósu, steiktum kartöflum, mjólkursýrðum rauðrófum og salati úr héraði - 4590 kr

Samtals - 6780 kr

Hægt er að taka þátt í hverjum dagskrálið fyrir sig en vinsamlegast skráið ykkur hér á síðunni í sögugönguna og í kvöldverðinn. Engin skráning nauðsynleg á menningardagskrá í kirkjunni. 

Nauðsynlegt er að panta kvöldverð með því að senda póst á hotelskalholt@skalholt.is eða hringja í síma 486 8870

DEILA VIÐBURÐINUM

bottom of page