top of page

„Gef þú oss þinn gæskufrið“ - Málþing í Skálholti 7. apríl nk kl 14:00

Útgáfumálþing vegna nýrrar útgáfu sálmabóka 16. aldar, 7. apríl nk kl 14:00. Handbækur og sálmar Marteins Einarssonar og Gísla Jónssonar, Skálholtsbiskupa, og Guðbrandar Þorlákssonar, Hólabiskups. Málþingið er á vegum Skálholtsfélagsins hin nýja. Minning dr. Karls biskups Sigurbjörnssonar heiðruð.

Skráningu á viðburðinn er lokið
Sjá aðra viðburði
„Gef þú oss þinn gæskufrið“ - Málþing í Skálholti 7. apríl nk kl 14:00
„Gef þú oss þinn gæskufrið“ - Málþing í Skálholti 7. apríl nk kl 14:00

TÍMI & STAÐSETNING

07. apr. 2024, 14:00 – 16:00

Skálholtsdómkirkja, Skálholt, 806, Selfoss, Iceland

UM VIÐBURÐINN

Málþing Skálholtsfélagsins hins nýja er haldið til að fagna endurútgáfu þriggja íslenskra sálmabóka frá 16. öld. Yfirskriftin er úr Da pacem Marteins. Hér eru gefnar út saman handbók og sálmabók Marteins biskups Einarssonar, upphaflega prentuð 1555, sálmabók Gísla biskups Jónssonar 1558, en þeir voru báðir biskupar í Skálholti, og loks sálmabók Guðbrandar biskups Þorlákssonar sem kom út á Hólum í Hjaltadal 1589. Sálmabækur Marteins og Gísla innihalda fáeina tugi sálma en í sálmabók Guðbrands eru 343 sálmar. Við 106 sálma í þeirri bók eru nótur við sálmana og er þetta fyrsta bók sem var prentuð á Íslandi og inniheldur nótur. Útgáfan var því merkur áfangi í íslenskri tónlistarsögu. Hér er að finna fyrstu stóru sálmasöfnin eftir siðbótina og lagði þessi arfur grunn að því sem kom síðar með æ fullkomnari sálmahefð á Íslandi á íslensku. Nægir þar að nefna sr. Hallgrím Pétursson á öldinni þar á eftir en hann byggði vissulega á þeirri hefð sem komin var.

Sunnudaginn 7. apríl verða liðin 475 ár frá biskupsvígslu Marteins Einarssonar en hann var annar lútherski biskupinn í Skálholti og Gísli Jónsson var eftirmaður hans. Vígsludagur Guðbrandar Þorlákssonar var 8. apríl og minnumst við þess einnig með málþinginu. Kaffiveitingar eru á veitingastaðnum Hvönn í Skálholtsskóla. Þess vegna er fólk hvatt til að skrá sig svo hægt verði að áætla veitingar. Messa verður í Skálholtsdómkirkju kl. 11 þennan sunnudag og málþingið fer einnig fram þar í kirkjunni.

Þessar þrjár bækur eru nú gefnar út í tveimur bindum undir sameiginlega heitinu "Sálmabækur 16. aldar". Textinn er með nútímastafsetningu. Í formála er gerð grein fyrir uppruna sálma og þróun þeirra á Íslandi en auk þess fylgja ítarlegar skýringar. Einnig hafa nóturnar verið aðlagaðar þeirri nótnaskrift sem nú tíðkast. Samanlagt eru bækurnar 600 blaðsíður.

Meðal ræðumanna átti að vera dr. Karl biskup Sigurbjörnsson sem var einn þeirra sem stóð að útgáfunni og las yfir texta bókanna. Verður minning hans heiðruð sérstaklega á málþinginu. Félagar Karls biskups í sálmabókinni eru Bragi Halldórsson, Elín Gunnlaugsdóttir, Guðrún Laufey Guðmundsdóttir, Kristján Eiríksson og Jón Torfason. Útgáfunni verður fagnað með tónlistarflutningi, erindum og umræðum. Gunnlaugur Bjarnason mun syngja og Jón Bjarnason leikur undir og flytur orgelverk.

Vegna veitinga er óskað eftir því að fólk skrái sig og láti jafnframt vita ef það hyggst kaupa sér hádegisverð. Málþingið er án aðgangseyris og öllum opið en mjög gott að vita hvað verða margir í kaffi á eftir sem er í boði Skálholtsfélagsins.

DEILA VIÐBURÐINUM

bottom of page