Biblíuleg íhugun 23-26 sept 2021
Kyrrðarbænasamtökin á Íslandi bjóða upp á námskeið í Biblíulegri íhugun 23. – 26. september 2021. Biblíuleg íhugun, eða Lectio divina, er aldagömul aðferð sem gengur út á að lesa Biblíuna með bæn að leiðarljósi. Á þessu námskeiði verður aðferðin kennd og iðkuð í margvíslegu samhengi.


TÍMI & STAÐSETTNING
23. sep. 2021, 18:00 – 26. sep. 2021, 13:30
Skálholt, Skálholt, Iceland
UM VIÐBURÐINN
Kyrrðarbænasamtökin á Íslandi bjóða upp á námskeið í Biblíulegri íhugun 23. – 26. september 2021.
Biblíuleg íhugun, eða Lectio divina, er aldagömul aðferð sem gengur út á að lesa Biblíuna með bæn að leiðarljósi. Á þessu námskeiði verður aðferðin kennd og iðkuð í margvíslegu samhengi.
Ástundun Biblíulegrar íhugunar verður tengd útivist, dagbókarskrifum og ýmsu öðru.
Farið verður stuttlega yfir skólaaðferð biblíulegrar íhugunar en aðal áherslan verður á klaustursaðferðina. Atburðir daglegs lífs verða einnig skoðaðir í ljósi Lectio divina og lagt stund á visio divina þar sem myndir eru notaðar í íhugun, musica divina og náttúru divina.
Þátttakendur deila reynslu sinni í minni eða stærri hópum eftir því sem við á.
Kyrrðin mun fá sitt rými með iðkun kyrrðarbænar og hluti helgarinnar mun fara fram í þögn.
Um er að ræða langa helgi sem hefst á fimmtudegi kl. 18 og endar kl. 14.30 á sunnudegi.
Umsjón er í höndum Bylgju Dísar Gunnarsdóttur og sr. Hennings Emils Magnússonar en þau eru með kennsluréttindi í Biblíulegri íhugun.
Námskeiðið er fyrir öll sem vilja auðga og efla bænalíf sitt og gefa biblíulestri aukna dýpt, hvort sem þau hafi reynslu af biblíulegri íhugun eða ekki. Reynsla af iðkun kyrrðarbænarinnar er kostur en ekki skylda.
Skálholt býður upp á einstaklings eða tveggja manna herbergi með sér baðherbergi. Gistingin er innifalin í gjaldinu ásamt fullu fæði.
Verð: Auglýst síðar
Skráning: www.skalholt.is eða í síma 486 8870
Nánari upplýsingar: Henning – 663 6606 / henning@gardasokn.is eða Bylgja – 661 7719 / kyrrdarbaen@kyrrdarbaen.is. Upplýsingar um Kyrrðarbæn og Biblíulega íhugun má einnig finna á www.kyrrdarbaen.is.