Færslur með efnisorðinu „Námskeið“
Meðvirkninámskeið í janúar 2012
Dagana 9.-13. janúar nk. verður boðið upp á sjöunda meðvirkninámskeiðið í Skálholti. Verið hjartanlega velkomin.
Fært inn 24. október 2011 | Lesa áfram
Fólkið í guðsþjónustunni – litlu minna en Guð?
Mannskilningur í helgihaldi og prédikun er viðfangsefni níunda prédikunarseminars Kjalarnessprófastsdæmis í Skálholti. Segja má því að guðfræði og mannfræði leiði saman hesta sína í prédikunum og fyrirlestrum í Skálholti 9.-11. október n.k.
Fært inn 28. september 2011 | Lesa áfram
Hjóna- og sambúðarnámskeið
Í nóvember verður boðið upp á nýja tegund námskeiða í Skálholti. Einvalalið leiðbeinanda mun bjóða upp á fjögurra daga hjóna- og sambúðarnámskeið dagana 7.-10. nóvember.
Fært inn 12. september 2011 | Lesa áfram
Prófessor Andrew Louth í Skálholti
Dagana 12.-13. september nk. heldur dr. Andrew Louth prófessor emerítus í kirkjufeðrunum og býsönskum fræðum við Durhamháskóla námskeið fyrir presta og guðfræðinga í Skálholti. Námskeiðinu var frestað í lok maí vegna eldgoss í Grímsvötnum.
Fært inn 27. ágúst 2011 | Lesa áfram
Í þínum höndum!
Spennandi námskeið fyrir verðandi foreldra í Skálholti. Umsjón hafa Auður Bjarnadóttir jógakennari og Sæunn Kjartansdóttir sálgreinir. Þetta námskeið verður haldið í haust og auglýst nánar á vefnum þegar nær dregur.
Fært inn 11. apríl 2011 | Lesa áfram
Námskeið um prédikun
Dr. Anne Carter Florence prófessor við Columbia Theological Seminary, Decatur, Georgia í Bandaríkjunum, stendur fyrir námskeiði um prédikunina í Skálholti dagana 18.-20. janúar á vegum Félags prestsvígðra kvenna.
Fært inn 19. janúar 2011 | Lesa áfram
Nærvera í heilbrigðisþjónustu
Dagana 10. – 12. janúar nk. verður á ný haldið námskeið í Skálholti undir yfirskriftinni Nærvera í heilbrigðisþjónustu – að hlúa að sjálfum sér og öðrum. Leiðbeinendur verða Anna Valdimarsdóttir og Erna Haraldsdóttir.
Fært inn 9. janúar 2011 | Lesa áfram
Fræðslunámskeið um Martein Lúther
Dagana 16.-18. janúar 2011 verður haldið fræðslunámskeið um Martein Lúther og áhrif hans. Námskeiðið er opið öllum sem vilja fá undirstöðufræðslu um Lúther og lútherska trúarhefð, guðfræðingum sem öðrum.
Fært inn 2. janúar 2011 | Lesa áfram
Jesús og jaðarfólkið
Dagana 10.-12. október nk. býður Kjalarnessprófastsdæmi í áttunda sinn til seminars um prédikunina í Skálholti. Í þetta sinn verður athyglinni beint að mannskilningi kristinnar trúar og hvernig honum er miðlað í prédikuninni.
Fært inn 8. september 2010 | Lesa áfram
Skapandi forysta – Creative leadership
Laugardaginn 2. okt. nk. kl. 16-21 verður haldið námskeið í Skálholti um skapandi forystu. Skapandi forysta miðar að því að hjálpa fólki til þess að leysa úr læðingi þann sköpunarkraft sem í því býr og yfirvinna þá tálma sem koma í veg fyrir að það nái settu marki.
Fært inn 30. ágúst 2010 | Lesa áfram
Barnakórstjóranámskeið 2010
Barnakórstjóranámskeið á vegum söngmálastjóra þjóðkirkjunnar verður haldið í Skálholti, dagana 12.–15. ágúst 2010. Leiðbeinendur verða Sigríður Eyþórsdóttir og Hörður Áskelsson.
Fært inn 11. ágúst 2010 | Lesa áfram
Organistanámskeið 2010
Söngmálastjóri stendur fyrir námskeiði fyrir organista í Skálholti dagana 23.–26. ágúst 2010. Námskeiðið er hugsað fyrir alla starfandi organista. Viðfangsefnin eru kórstjórn og raddþjálfun.
Fært inn 9. ágúst 2010 | Lesa áfram
Farsæl samvinna í safnaðarstarfi
Í febrúar 2011 er stefnt að því að halda annað endurmenntunarnámskeið í samstarfi Skálholtsskóla, Djáknafélags Íslands og HÍ fyrir djákna og presta í Skálholti.
Fært inn 8. júní 2010 | Lesa áfram
Elisabeth Schüssler-Fiorenza
Dagana 17.-18. maí nk. heldur dr. Elisabeth Schüssler-Fiorenza prófessor við Harvardháskóla (Harvard Divinity School) í Bandaríkjunum námskeið í Skálholti fyrir presta, djákna, guðfræðinga og guðfræðinema.
Fært inn 17. maí 2010 | Lesa áfram
Fjörug fermingarbörn
Undanfarna daga og vikur hafa fjölmargir hópar fermingarbarna heimsótt Skálholtsstað í fylgd sinna sóknarpresta.
Fært inn 19. mars 2010 | Lesa áfram
