Sigurður Sigurðarson vígslubiskup Skálholtsstiftis lést 25. nóvember 2010. Við fráfall séra Sigurðar var séra Jón Aðalsteinn Baldvinsson vígslubiskup á Hólum settur til að gegna embætti vígslubiskups Skálholtsstiftis. Herra Karl Sigurbjörnsson biskup hefur verið settur til að gegna formennsku í stjórn Skálholts og annast hann undirbúning Skálholtshátíðar í samráði við rektor og framkvæmdastjóra.
Sigurður fæddist 30. maí 1944 í Hraungerði í Hraungerðishrepp Árnessýslu. Faðir hans var Sigurður Pálsson, prestur í Hraungerði og síðar á Selfossi, prófastur Árnesprófastsdæmis og síðar vígslubiskup Skálholtsbiskupsdæmis. Móðir hans var Stefanía Gissurardóttir, húsfreyja í Hraungerði og síðar á Selfossi. Sigurður er kvæntur Arndísi Jónsdóttur, handavinnukennara og skólastjóra. Þau eiga 2 börn.
Sigurður varð stúdent frá MR árið 1965 og cand.theol. frá guðfræðideild Háskóla Íslands 25. september 1971. Hann nam fiðluleik við Tónlistarskóla Árnessýslu og Tónlistarskólann í Reykjavík á árunum 1956-1967 og dvaldi á vegum Cleveland International Program í Bandaríkjunum árið 1969. Sigurður er Master of Theology (Th.M.) frá Princeton Theological Seminary í Bandaríkjunum.
Störf: Veitt Selfossprestakall 16. desember 1971 frá 1. s.m. og vígður 19. s.m. í Skálholtskirkju. Skipaður vígslubiskup í Skálholtsstifti 4. júní 1994 og vígður biskupsvígslu af Ólafi Skúlasyni biskupi 24. júlí sama ár í Skálholtskirkju.
Kennslustörf: Stundakennari við Iðnskólann í Reykjavík 1966-1967 og á Bjargi 1968. Stundakennari við Iðnskólann á Selfossi 1971-1980, við Gagnfræðiskólann á Selfossi 1971-1980 og 1981-1983 og í kennimannlegri guðfræði við guðfræðideild Háskóla Íslands 1983-1984 og á haustmisseri 1989.
Félags- og trúnaðarstörf: Formaður Prestafélags Suðurlands 1972-1974. Í kjörstjórn á Selfossi 1974-1994. Í skólanefnd Sandvíkurskólahéraðs 1974-1986, formaður 1982-1986. Í fulltrúaráði og kjördæmisráði Sjálfstæðisflokksins á Suðurlandi 1975-1986. Í varastjórn Prestafélags Íslands 1978-1981 og í stjórn þess 1984-1990, þar af gjaldkeri 1984-1987 og formaður þess 1987-1989. Í helgisiðanefnd Þjóðkirkjunnar 1979-1998. Í stjórn menningarmálanefndar Sjálfstæðisflokksins 1983-1993, þar af formaður 1992-1993. Formaður nefndar prestastefnu 1983 er samdi frumvarp um starfsmenn Þjóðkirkjunnar. Í stjórn Byggða- og listasafns Árnessýslu og Bæjar- og héraðsbókasafnsins á Selfossi 1986-1994. Formaður stjórnar Listasafna Árnessýslu frá 1994. Í ráðherraskipaðri nefnd 1989 til að samræma frumvörp um starfsmenn Þjóðkirkjunnar og stöðu, stjórn og starfshætti hennar. Fulltrúi á ársfundum Norræna samkirkjuráðsins frá 1995 og í aðalstjórn þess frá 1999.
Ritstörf: Þorlákur helgi og samtíð hans. Reykjavík 1993. Fjöldi greina og hugvekja í Kirkjuritinu, Morgunblaðinu og héraðsblöðum Sunnlendinga. Heiðursmerki: R. ÍF. 1. desember 1994; Str. ÍF. 17. júní 2000.
Hér má nálgast yfirlit yfir alla biskupa í Skálholti.

