Skálholtsskóli býður upp á gistingu í mismunandi verðflokkum.
- Í aðalbyggingu eru 18 tveggja manna herbergi með baði.
- Í Seli 3 eru tveggjamanna herbergi og 2 einsmannsherbergi með tveimur sameiginlegum snyrtingum.
- Í Skálholtsbúðum (5-6 mín. gangur frá aðalbyggingu) eru 10 tveggjamanna herbergi og 1 einsmanns með sameiginlegri snyrtingu.
- Auk 3ja orlofshúsa með tveimur tveggjamannaherbergjum hvert.
Boðin eru uppbúin rúm og svefnpokagisting. Tveggja manna herbergin fást sem eins manns herbergi gegn viðbótargreiðslu.
Hægt er að kaupa morgunverð og aðrar máltíðir í aðalbyggingu.


