Þjáist þú af asasótt?
Á kyrrðardögum förum við í hvarf, tökum okkur hlé frá daglegri önn. Kristur gefur fordæmið er hann sagði við lærisveina sína: „Komið þér nú á óbyggðan stað svo að vér séum einir saman og hvílist um stund“ (Mark 6.31). Þögnin og kyrrðin veita tækifæri til íhugunar, að mæta sjálfum sér og Guði, að sjá líf sitt í nýju ljósi og láta uppbyggjast og endurnærast á sál og líkama. Fólk leitar líka á kyrrðardaga til að takast á við erfiða ákvörðun eða þungbærar fréttir með stuðningi starfsfólksins í hlýrri þögn. Boðin eru trúnaðarsamtöl og fyrirbænir.
Kyrrðardagar eru mislangir og með mismunandi sniði, en markmið þeirra allra er að njóta þess að vera án áreitis. Sameiginlegt er að kyrrðardagar hefjast með kvöldtíðum kl. 18. Því næst er gengið til kvöldverðar og að honum loknum fer fram kynningarstund. Þögnin gengur í garð síðla kvölds. Nokkrir kyrrðardagar hefjast á þriðjudagsmorgni með kynningarstund. Hugleiðingar eru fluttar tvisvar á dag um stef daganna og fylgt er helgihaldi Skálholtsstaðar. Við máltíðir er leikin sígild tónlist. Boðin er staðarskoðun með svokallaðri bænagöngu. Þögninni er aflétt um hádegisbil síðasta daginn.
Góð aðstaða, hóflegt verð
Aðstaða í Skálholti er öll eins og best verður á kosið. Boðin eru sérherbergi með snyrtingu, einbýli eða tvíbýli, uppbúin rúm og fullt fæði. Kostnaði er mjög í hóf stillt. Sérherbergi með snyrtingu og fullt fæði kostar aðeins frá kr. 16.000 fyrir styttri kyrrðardaga (föstudaga til sunnudaga) en kr. 22.000 fyrir lengstu kyrrðardagana.
Hver þátttakandi er einstaklingur á kyrrðardögunum enda þótt hann komi í litlum hópi vina eða vandamanna. Dagskrá kyrrðardaga er einungis tilboð til þátttakenda, en þeir ráða hvernig þeir verja tíma sínum, hvað þeir sækja af dagskrárliðum. Úrval vandaðs lesefnis er til reiðu. Þátttakendur eru hvattir til að taka með sér bæði inniskó og gönguskó, yfirhöfn og hvíldarfatnað, ritföng og minnisbók. Þeir sem þurfa á styrk að halda til að sækja kyrrðardaga geta sótt um úthlutun úr kyrrðarsjóði sem stofnað var til í minningu Magneu Þorkelsdóttur og Svövu Bernharðsdóttur. Einnig er tekið með þökkum við framlögum til sjóðsins: 0151-05-60560, kt. 280137-4219.
Rafræn skráning
Rafræn skráning á kyrrðardaga fer nú fram hér á vefnum undir hverjum lið kyrrðardaga (sjá dagskrá). Einnig má hringja í síma 486-8870.
Kyrrðardagabæklingur
Smellið hér til að skoða bækling um kyrrðardaga veturinn 2010-2011 á flytjanlegu skjalsniði (PDF, 465 KB). Bæklinginn má einnig fá sendan í pósti með því að fylla út formið hér að neðan.


