Staðhættir

Skálholtsland liggur í Biskupstungum milli Hvítár að austan og Brúarár að vestan. Landið er algróið mýrlendi sundurslitið af klapparásum sem halda norðaustur-suðvesturstefnu sem flest móbergsfjöll sunnanlands yfir eldvirku belti nærri flekamótum.

Góð landlega
Heitar lindir eru í tungunni milli ánna, afbragðs engjar og beitiland og veiðivötn ekki allfjarri. Staðurinn er í þjóðbraut sem lá um öræfin milli Norðurlands og Suðurlands fyrrum og þaðan talin stutt dagleið á Þingvöll og til kauphafnar niður á Eyrarbakka.

Af Skálholtshlaðinu blasir við Vörðufell mosaklætt, ávalt í lögun, litlu sunnar reisir Hestfjall eyrun móti staðnum. Í austri liggja Hreppafjöll en yfir þau ber Heklu og suðurjökla.

Á holtinu ofan við tunguna þar sem árnar mætast byggði fyrst bæ Teitur, sonur landnámsmannsins Ketilbjarnar hins gamla að Mosfelli; hét þar þá Skálaholt sem merkir holtið þar sem skáli stendur.

Hér verður hægt að skoða myndir af staðnum og fara í sögugönguferð um staðinn.

← Til baka