Dómkirkjan
Miðdepill Skálholtsstaðar er grunnur dómkirkjunnar. Þar stóð höfuðkirkja landsins í hálfa áttundu öld. Umhverfis er kirkjugarðurinn. Þar hvíla bein þeirra manna flestra, er settu svip á staðinn og þar með þjóðlífið um sína daga.
Þorláksbúð
Í norðaustanverðum kirkjugarði er rúst Þorláksbúðar, er kennd var við Þorlák helga. Hús þetta mun hafa verið skemma en fyrir kom að það var notað til embættistgjörða svo sem á dögum Ögmundar biskups Pálssonar, er dómkirkjan brann.
Jarðgöngin
Suður frá kirkjunni sér fyrir jarðgöngum þeim, er lágu til dómkirkjunnar frá staðarhúsunum.
Virkishóll
Fyrir austan kirkjugarð er Virkishóll, menjar virkisins sem Skálholtsmenn gerðu staðnum til varnar árið 1548 þegar Jón biskup Arason hugðist taka hann.
Kirkjukinn
Kirkjukinn heitir brekkan vestan undir kirkjugarðinum.
Biskupatraðir
Meðfram kirkjugarðinum að norðan eru Biskupatraðir (Norðurtraðir). Þar hefur vegurinn á seinni árum verið færður inn yfir kirkjugarðinn og er nú að mestu sunnan við gömlu traðirnar en þær sjást meðfram veginum að norðna.
Fornistöðull
Gamli vegurinn liggur síðan upp með túninu að austan hjá Fornastöðli. Á Fornastöðli tjaldaði Jón biskup Arason og menn hans 1548 og 1550.
Þorlákssæti
Skammt norðaustur af varðanum á aftökustað Jóns Arasonar er Þorlákssæti, en þar hafði Þorlákur biskup Þórhallsson hinn helgi oft setið.
Brekkutún, Íragerði og Íraleiði
Lengra vestur af Fornastöðli heitir Brekkutún. Í Brekkutúni er Íragerði. Þar voru sveinar Jóns Gerrekssonar dysjaðir 1433 en þeir voru taldir írskir. Dysjar sjást þar enn og heita Íraleiði.
Staupasteinn
Á hlaðinu er Staupasteinn og mjög sokkinn nú. Hann er mikið bjarg, fleygmyndaður að neðan ( ekki ólíkur staupi ). Sagan segir að við hann hafi oft verið drukkin hestaskál þegar haldið var úr hlaði.
Gamla bæjarstæðið
Suðvestur af kirkjugarði var biskupsbústaðurinn áður. Austar á hlaðinu var skálinn og híbýli kennara og skólasveina. Framar á hlaðinu voru miklar byggingar eins og rústir benda til að nokkru. Traðir liggja til suðvesturs.
Kyndluhóll og Þorláksbrunnur
Þar er Kyndluhóll norðan við og Þorláksbrunnur (kenndur við Þorlák helga).
Pollrás
Fyrir austan túnið er Pollrás.
Söðulhóll
Norðan við brúna yfir hana er Söðulhóll. Diðrik frá Mynden og liðsmenn hans sem gerðu aðsúg að Ögmundi biskup Pálssyni í ágústmánuði 1539, en menn biskups vógu, voru dysjaðir í Söðulhól.
Undapollur
Pollrás fellur í Undapoll en svo heitir tjörnin sem skerst í Hvítá.
Þengilseyri
Suður af Undapolli er Þengilseyri í Hvítá. Þar sundreið ána Teitur Gunnlaugsson í Bjarnarnesi með lið sitt, er þeir Þorvarður Loftsson á Möðruvölllum sóttu heim Jón Gerreksson 20. júlí 1433 til þess að hefna harma sinna á honum og mönnum hans. Drekktu þeir Jóni í Brúará og vógu sveina hans alla nema foringjann, Magnús, er komst undan af landi burt.
Vörðufell, Hestfjall og Skálholtstunga
Handan Hvítár rís Vörðufell en vestan sést Hestfjall, suður af Skálholtstungu.
Tíðaholt og Tíðaskarð
Fyrir austan Undapoll er Tíðaholt með Tíðaskarði.
Hreppafjöll, Hekla, Tindafjöll og Eyjafjallajökull
Þar yfir ber Hreppafjöll í austri og síðan Heklu, Tindafjöll og Eyjafjallajökul.
Dr. Sigurbjörn Einarsson tók saman.

