Vilchin Hinriksson

Vilchin Hinriksson var danskur biskup í Skálholti 1394–1405.

Vilchin var áður príor í Mikjálsklaustri í Björgvin. Hann stóð fyrir miklum byggingum í Skálholti, gerði vel við helga dóma þar og gaf dýrmæti til nunnuklausturs í Kirkjubæ. Á hans vegum var rituð máldagabók sem er grundvallarrit um hag Skálholtsbiskupsdæmis á miðöldum. Hann byggði meðal annars „sankti Þorláks höfuð meður klárt silfur og lagði þar í hausinn heilan, óbrotinn“, það er hann lét gera umbúnað úr silfri utan um höfuðkúpu Þorláks biskups.

Í Skálholtsbók yngri er m.a. skipan Vilchins biskups frá 1396 með ýmsum fyrirmælum til presta, meðal annars að þeir láti í brottu sínar opinberar barnamæður og frillur.

← Til baka