Þórður Þorláksson var biskup í Skálholti 1674–1697.
Þórður gekk í Hólaskóla, ferðaðist mikið, dvaldi og lærði í ýmsum Evrópulöndum. Hann var gefinn fyrir smíðar og tónlist, enda hagleiks- og hugvitsmaður, og átti hljóðfæri, regal og symfón. Merkust voru þó afskipti hans af bókagerð og prentun.
Þórður flutti prentverkið frá Hólum í Skálholt 1685 og réðst í útgáfu fornrita. Fram til þess hafði fátt verið prentað hér á landi utan guðsorðabækur. Þórður gerði landabréf af Íslandi og Grænlandi.
Hann var guðhræddur og bænrækinn í mataræði, fastaði alla föstudaga. Með hærri mönnum á vöxt og að því skaði þrekinn. Góðgerðasamur var hann fátækum enda var um hans daga sem fyrirrennara hans, fjöldi bjargþrota ölmusumanna í Skálholti. Hann lét hlaða upp Þorlákslaug af grjóti og kalki til að auka og nota heita vatnið. Gerði margar tilraunir til að sá korni í Skálholti en ekki heppnuðust þær.
Guðríður var dóttir Vísa-Gísla, sýslumanns á Hlíðarenda. Hann var mikill áhugamaður um ræktun, flutti inn og reyndi að rækta margar tegundir hér á landi. Guðríður átti mest kvenskart á Íslandi um sína daga.

