Jesús og jaðarfólkið

Sérvalin mynd

Dagana 10.-12. október nk. býður Kjalarnessprófastsdæmi í áttunda sinn til seminars um prédikunina í Skálholti. Í þetta sinn verður athyglinni beint að mannskilningi kristinnar trúar og hvernig honum er miðlað í prédikuninni.

Wilfried Engemann prófessor heldur þrjú erindi og stjórnar einnig prédikunarvinnustofu. Fyrsta erindið tekur á grundvallaratriðum prédikunarfræðinnar og hvað prédikarinn þarf að hafa í huga á ólíkum stigum prédikunargerðarinnar. Seinni erindin tvö koma inn á mannskilning prédikunarinnar annars vegar og helgihaldsins hins vegar. Hvaða sýn á manneskjuna miðla orð og textar prédikunar og helgihalds? Hvaða mynd af manneskjunni birtist í orðfæri bæna og helgitexta? Hvaða áhrif hefur sjálfsmynd prédikarans á prédikunina?

Mannskilningur Jesú, og hvernig hann mætir jaðarfólki samfélagsins og lærir af þeim, eru viðfangsefni hugleiðinganna sem fjórir prestar flytja og hópurinn bregst við. Stuðst verður við greiningarskema í þeirri vinnu sem notað hefur verið með góðum árangri á fyrri seminörum.

Samtalið við arineldinn á mánudagskvöldið verður við allsherjargoða Ásatrúarfélagsins, Hilmar Örn Hilmarsson. Hann ætlar að ræða eitt og annað í trúarlegum arfi Íslendinga, svo sem afstöðuna til lands og náttúru.

Prédikunarseminar Kjalarnessprófastsdæmis 2010 er haldið í samstarfi við Skálholtsskóla og Guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands.

Um aðalfyrirlesarann Wilfried Engemann

Wilfried Engemann (f. 1959) er prófessor í praktískri guðfræði við Wilhelmsháskólann í Münster í Þýskalandi.  Sérsvið hans er prédikunarfræði, sálgæslufræði og litúrgískar rannsóknir. Engemann hefur skrifað mikið um prédikunarfræði og bók hans Einführung in die Homiletik (Inngangur að prédikunarfræði) er kennd við nánast alla þýska háskóla.  

Nýjasta bók hans (2010) fjallar um mannskilning í tungumáli helgihaldsins. Engemann hefur tvisvar áður verið gestur á prédikunarseminari Kjalarnessprófastsdæmis, árið 2005 og 2008. Erindin sem hann flutti þá, hafa verið gefin út af Kjalarnessprófastsdæmi.

Erindunum verður dreift í íslenskri þýðingu til þátttakenda í seminarinu.

Skráning og upplýsingar

Nánari upplýsingar gefa prófastur og héraðsprestur Kjalarnessprófastsdæmis. Skráning fer fram í Skálholtsskóla í síma 486 8870 eða á www.skalholt.is.