Skapandi forysta – Creative leadership

Sérvalin mynd

Laugardaginn 2. október kl. 16-21 verður haldið námskeið í Skálholti um skapandi forystu. Skapandi forysta miðar að því  að hjálpa fólki til þess að leysa úr læðingi þann sköpunarkraft sem í því býr og  yfirvinna þá tálma sem koma í veg fyrir að það nái settu marki. Kjalarnessprófastsdæmi styrkir starf skapandi forystu. 

Laugardaginn 2. október kl.  16:00 heldur Sigrún Sævarsdóttir Griffiths námskeið í Skálholtsdómkirkju um  skapandi forystu, þar sem hún nýtir tónlist til þess að vinna með þau viðfangsefni sem leiðtogar þurfa að sigrast á í störfum sínum. Með aðferðum  skapandi forystu vinnur hún með hópi tónlistarfólks við sköpun og æfingar, en í  því ferli koma fram mörg því viðfangsefni sem mæta leiðtogum í störfum sínum.  Þar má nefna:

·         Hvernig  komust við þangað sem leiðin liggur?
·         Hvernig er  samvinnunni háttað?
·         Hverjir  hafa frumkvæðið?
·         Er fólk  ósammála? Í hverju felst ágreiningurinn?
·         Hvernig  leysir fólk ágreining?
·         Hvernig má  þróa hugmyndir áfram?
·         Er  hópurinn óvirkur? Skortir hugmyndir?
·         Er of  mikil frjósemi í hópnum? Vinna hugmyndirnar hver á móti annarri?
·         Hvernig  nýtum við þann efnivið sem okkur er úthlutaður?
·         Hvernig  lærum við á ólíkar aðstæður og ólíka hópa?

Ofangreindar spurningar liggja  til grundvallar erindi Sigrúnar en hún hefur fyrr um daginn unnið með stórum  hópi kórfólks og tekur hópurinn þátt í kynningunni. Að lokum er tónverkið flutt  sem samið hefur og æft, undir stjórn Sigrúnar.

Sigrún Sævarsdóttir-Griffiths  hefur verið kennari við Guildhall School of Music and Drama frá árinu 2000,  lengst af sem stjórnandi Skapandi Tónlistarmiðlunar. Haustið 2009 tók hún við  stjórn Masters deildarinnar, Creative Leadership við skólann.  Hún hefur  haldið fyrirlestra og námskeið víða um heim, m.a. fyrir margar af virtustu  sinfóníuhljómsveitum Bretlands ss.  Royal Philharmonic Orchestra, London  Sinfonietta, Britten Simphonia, Viva Orchestra og London Symphony  Orchestra.  Sigrún er meðal stofnenda og frumkvöðla Guildhall Connect sem  er samfélagsverkefni Guildhall skólans. Verkefni þetta vann til The Queen´s Anniversary Award árið 2005.