Kyrrðardagar fyrir konur

Sérvalin mynd

Dagana 15.-19. september nk. verður boðið upp á kyrrðardaga fyrir konur í Skálholti undir yfirskriftinni „að efla líkamlegt og andlegt heilbrigði“.

Fyrirlestrar eru í boði um það hvernig efla má líkamlegt og andlegt heilbrigði. Fyrirlesari er dr. Sigríður Halldórsdóttir prófessor við Háskólann á Akureyri, sem byggir fyrirlestrana m.a. á rannsóknarniðurstöðum úr sál- og taugaónæmisfræði sem veita mikilsverða þekkingu á því hvernig við getum sjálf styrkt okkar eigin heilsu. Boðið er upp á einstaklingsviðtöl og ráðgjöf. Þá er fyrirbæn einnig í boði. Allt er innifalið í þátttökugjaldinu.

Verð í einsmannsherbergi með salerni og sturtu og fullu fæði aðeins 24.000.- kr. Rafræn skráning hér fyrir neðan eða í síma 486 8870.

Dr. Sigríður Halldórsdóttir

Dr. Sigríður Halldórsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

 

Rafræn skráning á kyrrðardaga 7.-9. október 2011

Fullt nafn (krafist)

Kennitala (krafist)

Netfang (krafist)

Símanúmer (a.m.k. eitt)

Fjöldi þátttakenda:

Skilaboð

Leggðu saman tvo og tvo = 
[Þetta er til að koma í veg fyrir ruslpóst]