Gleði í lit

IngibjörglistakonaÁ sunnudag, 15. ágúst, kl. 15.00, verður opnuð ný málverkasýning í Skálholtsskóla. Það er Guðrún B. Ingibjartsdóttir myndlistakona sem sýnir verk sýn, alls 41 vatnslitamyndir. Sýningin stendur fram í október. 

Guðrún er fædd og uppalin á bænum Hesti við Ísafjarðardjúp en býr nú og starfar í Reykjavík. Guðrún er frístundamálari og er í listaklúbbnum Litagleði sem er hópur fólks sem hittist vikulega yfir veturinn og stundar list sína. Guðrún hefur haldið nokkrar myndlistarsýningar, m.a. í Eden Hveragerði, „Hjá Jóni Indíafara“ í Súðavík og “Uppstoppuðu búðinni“ á Hvolsvelli.

Guðrún hefur m.a. numið í myndlistarskólanum í Kópavogi og verið á námskeiðum hjá Erlu Sigurðardóttur og Ingiberg á árunum 1994–1996. Þar að auki má nefna 2ja vikna vatnslitanámskeið á Earnlay Englandi árið 1999 og vatnslitanámskeið hjá Bridget Woods sem er enskur kennari og myndlistarkona.

Hægt er að sjá myndir Guðrúnar á vefnum Google.com:  Gudrun Ingibjarts Flickr. Netfang hennar er gbjartar@visir.is