Barnakórstjóranámskeið 2010
Í framhaldi af vel heppnuðum barnakórsstjóranámskeiðum undanfarin sumur mun Söngmálastjóri þjóðkirkjunnar gangast fyrir Barnakórstjóranámskeiði í Skálholti, dagana 12.–15. ágúst 2009. Námskeiðið er skipulagt í samvinnu við Skálholtsskóla eins og undanfarin ár. Að þessu sinni verða tveir leiðbeinendur þau Hörður Áskelsson söngmálastjóri þjóðkirkjunnar og Sigríður Eyþórsdóttir kórstjóri sem starfar í Danmörku. Sigríður kennir kennslufræði með kynningum á nýju efni fyrir kóra bæði yngri og eldri barna og Hörður kennir kórstjórnartækni. Á námskeiðinu munu þær Guðný Einarsdóttir organisti og Diljá Sigursveinsdóttir leiðbeinandi kynna verkefnið Krílasálmar, nýjung í söngstarfi með smábörn, sem þær hafa verið að innleiða á Íslandi.
Námskeiðslýsing:
Í Skálholti mun Sigríður byggja kennsluna á hreyfingum, dansi og annarri líkamlegri tjáningu og miðast námskeiðið við kennslu minnstu barnanna í kór þ.e. 6 til 9 ára. Farið verður yfir mikilvægi þess að virkja líkamann með í söngnum og gerðar ýmsar æfingar í því sambandi. Áhersla verður lögð á að þátttakendur lagi aðferðirnar að sínum eigin, enginn mun þurfa að hoppa og skoppa meira en hann langar. Einfaldir dansar og handahreyfingar verða tengd söngnum. Þátttakendur fá að skapa hreyfingar og dansa sem hæfa þeim sjálfum og þeim kór sem þeir vinna með hverju sinni. Þeir munu læra að nota „body percussion“ við upphitun, til að vekja líkamsmeðvitund og skapa einföld mynstur sem jafnvel má nota á tónleikum. Einnig verður rifjað upp sol-fa kerfið, hvernig nota má handahreyfingar Kodalys til að læra og syngja einfaldar yfirraddir og æfa þær með börnunum á leikandi hátt. Þar að auki verður talað um hvernig nota má mismunandi hreyfingar, uppstillingar og annað, bæði á tónleikum og við þátttöku í messum. Sigríður mun taka með sér efni að utan, en einnig verður unnið með einföld lög sem þátttakendur námskeiðsins kunna og finnst skemmtileg og þægileg að vinna með. Út frá þeim verða gerðar yfirraddir, hreyfingar, dansar og annað sem hópurinn kann að finna upp á. Þátttakendur eru hvattir til að taka með sér uppáhaldslögin sín fyrir börn á aldrinum 6-9 ára. Hreyfing verður mikil svo nauðsynlegt er að taka með sér létt föt og góða skó.
Hörður Áskelsson mun kenna kórstjórnartækni. Helstu áhersluatriði kennslunnar:
- a) skýrt taktslag
- b) að byrja lag á “réttum” hraða
- c) að ná góðu sambandi við kórinn í gegnum hreyfingar líkama, andlits og handa
- d) að standa rétt
Þátttakendur mynda kór sem æfir kórtónlist, sem flutt verður í Skálholtskirkju. Þátttakendur eru hvattir til að taka með sér kórlög, sem þeir óska að kynna og stjórna.
- Sigríður Eyþórsdóttir
- Hörður Áskelsson
Dagskrá námskeiðsins:
Fimmtudagur 12. ágúst
- Kl. 14-16 Skráning þátttakenda
- Kl. 16 Setning námskeiðs og kynning á námsgögnum
- Kl. 18 Aftansöngur í Skálholtsdómkirkju
- Kl. 18.30 Kvöldverður
- Kl. 20-21.30 Kvöldvaka, þátttakendur kynna sínar bestu hliðar
Föstudagur 13. ágúst
- Kl. 8 Morgunverður
- Kl. 9 Morgunsöngur í kirkju
- Kl. 9.30 Sigríður
- Kl. 12-13 Hádegisverður
- Kl. 13-14.30 Hörður – Tenging hugar og handa í taktslætti.
- Kl. 15-16 Kynning á nýju efni
- Kl. 16 Kaffi
- Kl. 16.30-18 Sigríður/Hörður Söngæfing
- Kl. 18 Aftansöngur í kirkju
- Kl. 18.30 Kvöldverður
- Kl. 20-21.30 Kvöldvaka, kynning á nýju efni
Laugardagur 14. ágúst
- Kl. 8 Morgunverður
- Kl. 9 Morgunsöngur í kirkju
- Kl. 9.30 Sigríður/Hörður Söngæfing
- Kl. 12-13 Hádegisverður
- Kl. 13-14.30 Hörður – Að vera í sambandi við kórinn.
- Kl. 15-16 Kynning á nýju efni
- Kl. 16 Kaffi
- Kl. 16.30-18 Sigríður/Hörður Söngæfing
- Kl. 18 Aftansöngur í kirkju
- Kl. 18.30 Kvöldverður
- Kl. 20-21.30 Kvöldvaka
Sunnudagur 15. ágúst
- Kl. 9 Morgunverður
- Kl. 10.30 Æfing fyrir messu þar sem barnakór og þátttakendur í námskeiðinu sjá um tónlistina
- Kl. 12-13 Hádegisverður
- Kl. 14 Messa
- Kl. 15.30 Messukaffi – Námskeiðslok
Dagskrá þessi er birt með fyrirvara um breytingar.
Umsóknarfrestur er til 1. júní 2010 en hámarksfjöldi þátttakenda er 30. Rafræn skráning hér fyrir neðan.
Verð fyrir fæði og gistingu í Skálholtsskóla í 3 sólarhringa: kr. 28.000,-
Þátttökugjald er kr. 17.000,- (Innifalið er kennsla, kennslugögn o.fl.)
Gjald fyrir þátttöku, fæði og gistingu er því aðeins 45.000,- kr. samtals.
Staðfestingargjald kr. 10.000,- greiðist við skráningu eða eigi síðar en 1. júní. Ljúka þarf síðan við að greiða fyrir námskeiðið að fullu fyrir 1. ágúst.




