Organistanámskeið 2010

Sérvalin mynd

Söngmálastjóri stendur fyrir námskeiði fyrir organista í Skálholti dagana 23.–26. ágúst 2010. Námskeiðið er hugsað fyrir alla starfandi organista. Viðfangsefnin eru kórstjórn og raddþjálfun.

Leiðbeinendur verða Hörður Áskelsson, sem kennir kórstjórn og Marta G. Halldórsdóttir sem kennir raddþjálfun. Auk hóptíma í raddþjálfun býður hún upp á einkatíma í söng fyrir þátttakendur.

Námskeiðslýsing:

Hörður Áskelsson mun miðla af áralangri reynslu við þjálfun kóra. Farið verður í stjórntækni og árangurstengda æfingastjórn. Notast verður við kórbókina “Heyr oss himnum á”, sem kom út hjá Skálholtsútgáfunni á síðasta ári. Þátttakendur mynda kór sem æfir valda söngva úr bókinni, auk þess sem haldið verður áfram vinnu með kórspuna sem hófst á námskeiðinu 2009. Þátttakendur eru hvattir til aða taka með sér kórlög, sem þeir telji að eigi erindi við hópinn, eða sem fela í sér áhugaverð stjórntæknileg úrlausnarefni. Haldið verður áfram æfingum í kórspuna, sem byrjað var með á síðasta námskeiði, m.a. gerðar tilraunir með fjögurra radda keðjusöngva í frábærum hljómburði Skálholtskirkju.

Marta Guðrún Halldórsdóttir mun hafa „Hljómlíkamann“ (“Klangkörper“) að leiðarljósi í kennslu sinni í Skálholti í sumar. Hún mun þræða undirstöðuatriði í raddbeitingu, tengja saman tónmyndun og hljómmyndun líkamans og það hvernig við byggjum upp hljóm raddarinnar þannig að hún þjóni vel sem kórhljóðfæri. Jafnframt mun hún leiðbeina þátttakendum í að miðla þeirri þekkingu til annarra með söngæfingum og hreyfingu. Tilgangur og markmið upphitunar í byrjun kóræfingar verður einnig á dagskránni.

 

Dagskrá námskeiðsins:

Mánudagur 23. ágúst

  • Kl. 9  Morgunsöngur í Skálholtsdómkirkju
  • Kl. 9.15  Námskeiðssetning, námsgögn kynnt                                                   
  • Kl. 10.00 Upphitun, kenndar upphitunaræfingar                                               
  • Kl. 10.30 Kórstjórn, slagtækni, líkamsstaða                                                       
  • Kl. 12-13  Hádegisverður
  • Kl. 13  Kóræfing og kennsla
  • Kl. 15  Kaffi
  • Kl. 16  Kóræfingin, lykill að góðum árangri
  • Kl. 18  Aftansöngur í kirkju
  • Kl. 18.30  Kvöldverður
  • Kl. 20  Kórspuni í Skálholtsdómkirkju, fastir liðir messunnar

Þriðjudagur 24. ágúst

  • Kl. 9  Morgunsöngur í kirkju
  • Kl. 9.15  Upphitun, kóræfing, kennsla
  • Kl. 12-13  Hádegisverður
  • Kl. 13  Kóræfing, kennsla (einstaklingskennsla í söng)
  • Kl. 15  Kaffi
  • Kl. 16  Kóræfing í kirkju – Aftansöngur (Evensong) æfður
  • Kl. 18  Aftansöngur í kirkju
  • Kl. 18.30  Kvöldverður
  • Kl. 20.00  Kórspuni í Skálholtsdómkirkju – orgel og kór

Miðvikudagur 25. ágúst

  • Kl. 9  Morgunsöngur í kirkju
  • Kl. 9.15  Upphitun, kóræfing, kennsla
  • Kl. 12-13  Hádegisverður
  • Kl. 13  Kóræfing, kennsla (einstaklingskennsla í söng)
  • Kl. 15  Kaffi
  • Kl. 16  Kóræfing í kirkju – Kvöldmessa æfð
  • Kl. 18  Aftansöngur í kirkju
  • Kl. 18.15 Generalprufa fyrir messu kvöldsins
  • Kl. 19.30  Kvöldverður
  • Kl. 21.00  Kvöldmessa

Fimmtudagur 26. ágúst

  • Kl. 9  Morgunsöngur í kirkju
  • Kl. 9.15  Morgunverður
  • Kl. 10  Námskeiðsslit og fararblessun

Dagskrá þessi er birt með fyrirvara um breytingar.

Umsóknarfrestur er til 1. júní 2010 en hámarksfjöldi þátttakenda er 30. Rafræn skráning hér fyrir neðan.

Verð fyrir fæði og gistingu í Skálholtsskóla í 3 sólarhringa: kr. 32.000,-

Þátttökugjald er kr.  17.000,- (Innifalið er kennsla, kennslugögn o.fl.)

Gjald fyrir þátttöku, fæði og gistingu er því samtals aðeins 49.000- kr.

Staðfestingargjald kr. 10.000,- greiðist við skráningu eða eigi síðar en 1. júní.   Ljúka þarf síðan við að greiða fyrir námskeiðið að fullu fyrir 1. ágúst.

Nánari upplýsingar gefur Arngerður María í síma 856-1597 eða á arngerdur.arnadottir@kirkjan.is

Rafræn skráning á organistanámskeið 23. til 26. ágúst 2010

Fullt nafn (krafist)

Kennitala (krafist)

Netfang (krafist)

Símanúmer (a.m.k. eitt)

Fjöldi þátttakenda:

Skilaboð

Leggðu saman tvo og tvo = 
[Þetta er til að koma í veg fyrir ruslpóst]