Ítölsk og íslensk tónlist

Sérvalin mynd

Kórinn Libera Cantoria Pisani verður gestur Sumartónleikanna í Skálholti um næstu helgi. Þeir munu flytja ítölsk og íslensk lög frá ýmsum tímum. Tónleikarnir á laugardag kl. 15.00 bera yfirskriftina Sacred and profane og tónleikarnir kl. 17.00 Ítölsk endurreisnartónlist (O beltá rara). Á laugardag spilar Gigi Sella á sópran saxafón og klarinett með kórnum. Stjórnandi er Filippo Furlan.

Á sunnudag kl. 15.00 flytur kórinn úrval laga úr efnisskrá laugardagsins. Hann mun einnig annast söng í guðsþjónustu í Skálholtsdómkirkju kl. 17.00. Prestur: Sr. Egill Hallgrímsson.

Sjá nánar á heimasíðu Sumartónleikanna (www.sumartonleikar.is).

Filippo Furlan

Filippo Furlan