Verslunarmannahelgin í Skálholti

Sérvalin mynd

Um verslunarmannahelgi er fjölbreytt tónlistardagskrá í Skálholti. Tónlistarveislan hefst reyndar á fimmtudagskvöldi kl. 20.00 með tónleikum Skálholtskvartettsins sem spilar strengjakvintett í c-dúr eftir Franz Schubert. Kvartettinn skipa Japp Schröder (fiðla), Rut Ingólfsdóttir (fiðla), Svava Bernharðsdóttir (víóla) og Sigurður Halldórsson (selló). Sérstakur gestur er Bruno Cocset sellóleikari frá Frakklandi.

Skálholtskvartettinn flytur síðasta strengjakvartett Schuberts að loknu erindi Lárusar Jóhannessonar (kl. 14.00 í skólanum) á laugardag kl. 15.00.

Á laugardag verður sérstök tónlistardagskrá kl. 17.00 undir yfirskriftinni Helg naumhyggja. Tónlsitarmennirnir Greta Salóme Stefánsdóttir (fiðla) og Ólafur Arnalds (hljómborð) spila verk eftir Arvo Pärt og Ólaf Arnalds. Verk Ólafs er sérstaklega samið fyrir þetta tilefni.

Þá verða sérstakir tónleikar í Oddstofu, Skálholtsbúðum, á laugardag kl. 20.00. Á efnisskránni eru verk eftir Joseph Haydn, Beethoven, Domenico Dragonetti og Luigi Boccherini. Flytjendur eru Martial Nardeau (flauta), Jaap Schröder (fiðla), Hildigunnur Halldórsdóttir (fiðla), Svava Bernharðsdóttir (víóla), Sigurður Halldórsson (selló) og Dean Ferrell (kontrabassi)

Á sunnudag og mánudag kl. 15.00 verður flutt tónlist frá Ensku gullöldinni. Á efnisskránni eru verk eftir Robert Parsons, John Jenkins, William White, John Ward, John Jenkins, William Mundy og Christopher Tye. Flytjendur eru Jaap Schröder (fiðla), Hildigunnur Halldórsdóttir (fiðla), Bruno Cocset (tenórfiðla), Sigurður Halldórsson (bassafiðla), Dean Ferrell (bassafiðla) og Eyþór Ingi Jónsson (orgel). 

Í guðsþjónustunni á sunnudag, 1. ágúst, kl. 17.00 annast Greta Salóme Stefánsdóttir tónlistarflutning. Prestur sr. Egill Hallgrímsson.