Nýr kaleikur í Skálholtsdómkirkju

Nýi kaleikurinn

Nýi kaleikurinn

Á Skálholtshátíð, 18. júlí kl. 14.00, var tekinn til notkunar nýr kaleikur í Skálholtsdómkirkju. Minningarsjóður Þorláks helga leggur hann þjónustunni til eins og fleira það sem notað er við helgisþjónustuna í Skálholti. Kaleikurinn er smíðaður hjá fyrirtækinu Vanpoulles í London og er þar nefndur íslensk gerð.

Sr. Sigurður Sigurðarson vígslubiskup segir í dagskrá Skálholtshátíðar 2010, bls. 4:

Kaleikar eru meðal allra elstu kirkjumuna og jafn gamlir kristnum söfnuði. Í upphafi voru þeir úr ýmsum efnum svo sem gleri, leir og viðarkaleikar voru jafnvel til. Eftir að kirkjan varð frjáls var farið að leggja meira í kaleika eins og aðra kirkjumuni. Við upphaf kristni hér á landi er þar komið sögu, að farið er að nota silfur og gull fyrst og fremst sem efni til slíkra nota. Íslendingar virðast raunar alla tíð hafa lagt upp úr að nota þau efni nokkuð ríkulega eins og t.d. gamalt kvenskraut okkar vitnar um. Til eru margir kaleikar frá miðaldakirkjunni hér blði í kirkjum og á söfnum. Flestir eru þeir innfluttir og bera uppruna sínum vitni. Nokkrir miðaldakaleikar skera sig nokkuð úr. Eru þeir líkir að gerð og taldir íslensk smíð frá tólftu og þrettándu öld. Eru þeir rómanskir í grundvallaratriðum. Einkenni þeirra er að fótastykki þeirra er alveg hringlaga og dregst fóturinn saman í jöfnum boga upp að hnútnum, sem er kúlulaga og steyptur með lauflaga opum til skrauts. Hálsinn milli hnúðs og skálar er óvenju stuttur. Skálin er hálfkúla að lögun. Nýi kaleikurinn hér ber öll essi einkenni og telja má víst að Þorlákur helgi hafi einmitt handleikið þessu líkan grip á sinni tíð.