Ný gestastofa í Skálholti

Sérvalin mynd

Á síðasta sunnudag var opnuð ný og glæsileg gestastofa í Skálholti. Þar er gefin innsýn inn í meira en 950 ára sögu staðarins með textum (á íslensku og ensku), myndefni og minjagripum. Nýja húsið er 120 fermetra timburhús og stendur við bílaplan staðarins, vestan við Skálholtsskóla. Loftur Magnússon á Flúðum hannaði húsið og smíðaði það. Fjölmargur iðnaðarmenn úr sveitinni komu að verkinu. Björn G. Björnsson grafískur hönnuður hannaði sýninguna í samvinnu við heimafólk.

Húsið mun bæta þjónustustig staðarins og auka möguleikana til fræðslu og menningarmiðlunar.  Seldur verður aðgangur að sýningunni á hóflegu verði.

Myndasyrpan hér fyrir neðan var tekin af Jóni K.B. Sigfússyni við opnunarathöfn að kvöldi sunnudagsins 18. júlí: