Minningartónleikar um Helgu Ingólfsdóttur
Dagana 22.-25. júlí verður haldin tónleikaröð í minningu Helgu Ingólfsdóttur semballeikara (1942-2009) í Skálholti.
Á fimmtudag, 22. júlí 2010 kl. 20.00, og sunnudag, 25. júlí kl. 15.00 verður boðið upp á ítalska strengjasveiflu. Á fjölbreyttri efnisskrá eru verk eftir A. Vivaldi, J.S. Bach, A. Scarlatti, A. Corelli og G.F. Händel. Bachsveitin í Skálholti leikur. Leiðari er Peter Spissky fiðluleikari.
Á laugardag kl. 14.00 flytur Kolbeinn Bjarnason flautuleikari erindi í minningu Helgu í Skálholtsskóla.
Þann dag verður flutt sérstök minningardagskrá kl. 15.00 í Skálholtsdómkirkju með verkum eftir J.S. Bach, Oliver Kentish, Harald Genzmer, G.F. Händel og J.G. Walther. Flytjendur eru Hedwig Bilgram, orgel og semball, Guðrún Óskarsdóttir, semball, Marta Halldórsdóttir sópransöngvari, Hildigunnur Halldórsdóttir fiðla og Sigurður Halldórsson selló.
Kl. 17.00 flytur Bachsveitin efnisskrá undir yfirskriftinni Bach í Skálholti. Flutt verður konsert fyrir fiðlu, strengi og fylgirödd í a-moll (BWV 1041), kantata BWV 202 „Weichet nur, betrübte Schatten“ fyrir sópran, óbó, strengi og fylgirödd og konsert fyrir orgel, óbó, strengi og fylgirödd í d-moll (BWV 1059). Ásamt Bachsveitinni spilar Hedwig Bilgram á orgel og Marta Halldórssdóttir syngur. Peter Spissky leiðir.
Í guðsþjónustunni á sunnudag, kl. 17.00, annast Hedwig Bilgram orgelleikari og Marta Halldórsdóttir sópransöngkona tónlistarflutningu. Prestur: Sr. Egill Hallgrímsson.
Sjá nánari upplýsingar um dagskrá og flytjendur á vef Sumartónleikanna: www.sumartonleikar.is
Verið öll hjartanlega velkomin á tónleika í Skálholti!
- Guðrún Óskarsdóttir
- Hedwig Bilgram
- Peter Spissky
- Marta G. Halldórsdóttir
- Bachsveitin







