Ástralskur kór með tónleika á þriðjudag kl. 20.00

Sérvalin mynd

Kór St Michael’’s Grammar School fer í sína fjórðu tónleikaferð um Evrópu í júní og júlí 2010 en fyrri ferðirnar þrjár voru farnar árin 2003, 2005 og 2008. Í kórnum eru 30 meðlimir sem valdir hafa verið úr fimm kórum eldri nemenda skólans ásamt því að hafa þreytt inntökupróf. Kórdeild skólans hefur verið í þróun síðustu 20 árin af 107 ára sögu skólans, fyrst af Ian Harrison og síðan Dr Gary Ekkel frá 1996. Ásamt sínum reglulegum skuldbindingum syngja kórarnir vikulega í guðsþjónustu í skólanum og flytja árlega stórt kórverk með hljómsveit t.d. Requiem eftir Mozart og Fauré, Nelson Mass eftir Haydn og Messías eftir Handel. Nýlega hefur kórinn einnig fengist við konsertuppfærslur af verkum eins og Dídó og Eneas eftir Purcell, Carmina Burana eftir Orf og African Sanctus eftir David Fanshawe.

Á þriðja tónleikaferðalagi kórsins í júní og júlí 2008 kom kórinn fram á ellefu tónleikum, þremur messum, nokkrum námskeiðum og einni alþjóðlegri keppni á Ítalíu, Þýskalandi, Hollandi, Frakklandi og Ástralíu t.d. í San Marco basilíkunni í Feneyjum, Notre Dame dómkirkjunni í París, York Minster á Englandi ásamt minni sögulegum kirkjum og stöðum í Evrópu. Kórinn hefur komist tvisvar í úrslit í Llangollen Eisteddfod í Wales, vann Ehrenpreis árið 2005 í Mixed Choirs Competition of the Vienna International Youth and Music Competition og varð þess heiðurs aðnjótandi að koma fram á verðlaunaafhendingu keppninnar.