Danskir tónleikar í Skálholtsdómkirkju 30. júní nk.

Sérvalin mynd

Miðvikudaginn 30. júní, kl. 17.00, heldur Herfølgekoret frá Danmörku tónleika í Skálholtsdómkirkju. Um þessar mundir heldur kórinn upp á 35 ára afmæli sitt og af því tilefni var ákveðið að heimsækja Ísland dagana 26. júní til 4. júlí. Á efnisskránni er úrval kórtónlistar úr ýmsum áttum, m.a. Deutsche Messe eftir Schubert, Ave verum corpus eftir Mozart, Locus iste eftir Bruckner, Sicut cervus eftir Palestrina, Det dufter lysegrønt af græs eftir Ahlén o.fl. Þá hafa þau á efnisskránni dönsk og íslensk lög.

Stjórnandi er Nikolaj Andersen. Formaður er Bent Larsen.

Aðgangur er ókeypis. Verið hjartanlega velkomin á danska tónleika í Skálholtsdómkirkju!