Farsæl samvinna í safnaðarstarfi
Í febrúar 2011 er stefnt að því að bjóða upp á annað endurmenntunarnámskeiðið í samstarfi Skálholtsskóla, Djáknafélags Íslands og HÍ fyrir djákna og presta í Skálholti. Kennararnir er norskir og koma frá sömu stofnun og Berit Okkenhaug í fyrra sem heitir Modum Bad. Þau heita sr. Rune Strey prestur og Eli Landro djákni. Þau ætla að fjalla um farsælt samstarf á kirkjulegum vettvangi. Öll kennsla verður þýdd beint yfir á íslensku.
Sr. Rune Strey er 53 ára gamall guðfræðingur frá Menighetsfakultet í Osló. Hann hefur starfað sem prestur í norsku kirkjunni í 18 ár, þar af í 9 ár sem prestur á Sálgæslustofnuninni á Modum Bad.
Eli Lando er 56 ára, menntuð sem kennari og djákni. Hún starfaði í 3 ár við norsku sjómannakirkjuna í Japan og í 6 ár sem barnakennari í Kenía. Þá hefur hún verið við störf sem djákni í norsku kirkjunni í 11 ár og 1 ár sem djákni við Sálgæslustofnunina á Modum Bad.
- Eli Landro djákni
- Sr. Rune Stray
Sr. Rune Strey mun kenna eftirfarandi efni:
- Á hvern hátt þróum við samvinnu í safnaðarstarfinu til hagsbóta fyrir söfnuð og starfsfólk?
- Ágreiningur í safnaðarstarfi (hópúrvinnsla).
Eli Landro mun leggja áherslu á eftirfarandi þætti:
- Kærleiksþjónusta í söfnuðunum. Sýn starfsins, skilgreiningar og markmið. Samstarfsvettvangur presta og djákna.
- Í fótspor Péturs postula. Ábyrgð hirðis og leiðtogahlutverkið.
Námskeiðið hefst á sunnudegi með sameiginlegum kvöldverði og kvöldguðsþjónustu þar sem gestir okkar frá Noregi taka virkan þátt. Áætlað er að námskeiðinu ljúki eftir samantekt og kaffi á þriðjudegi kl. 15.00.
Heildarkostnaður er aðeins 32.000.- kr. (Þar af er námskeiðsgjald kr. 8.000.-, fæðiskostnaður kr. 16.200.- og gisting kr. 7.800.-).
Rafræn skráning hér fyrir neðan. Staðfestingargjald kr. 8.000.- greiðist í síðasta lagi 1. september 2010




