Bæn, kyrrð og íhugun í 8 daga!

Sérvalin mynd

Pat Johnson frá Bandaríkjunum mun leiða átta daga kyrrðardaga í Skálholti dagana 28. apríl til 6. maí nk. Frábært tækifæri fyrir alla þá sem vilja draga sig út úr amstri hversdagsleikans og eiga uppbyggilega samveru með áherslu á kristna íhugun og kyrrðarbæn (e. centering prayer). Þetta er sérstök íhugunaraðferð sem reynst hefur þúsundum ákaflega vel. Umsjón: Pat Johnson og séra Ragnheiður Jónsdóttir.

Nánari upplýsingar og skráning í síma 486 8870 (Harpa eða Kristinn) eða með netfanginu harpa@skalholt.is. Rafræn skráning hér fyrir neðan.

Verð fyrir gistingu í einsmannaherbergi með salerni og sturtu og fullt fæði allan tímann aðeins: 49.000 kr.

Verið hjartanlega velkomin!

[contact-form 404 "Not Found"]