Kyrrð og lífsgæði

Sérvalin mynd

Helgina 26.-28. mars leiða dr. Sigrún Gunnarsdóttir hjúkrunarfræðingur (sjá efri mynd) og Sigríður Hrönn Sigurðardóttir hjúkrunarfræðingur og guðfræðingur kyrrðardaga með yfirskriftinni Kyrrð og lífsgæði. Þessir dagar eru ætlaðir þeim sem búa við annríki og álag og vilja staldra við, hvílast og endurnærast. Áhersla er lögð á kristna íhugun, ígrundun um lífsgæði í dagsins önn, slökun og útiveru. Hannes Guðrúnarson gítarleikari mun annast tónlistaríhugun í Skálholtsdómkirkju. Dagarnir eru í umsjón Kristilegs félags heilbrigðisstétta (KFH). Þessi dagskrá hefst kl. 18.00 á föstudegi og henni lýkur um kl. 14.00 á sunnudegi. Uppbókað er á dagana.

Helgin kostar 17.000.- kr. á mann og er innifalin í verðinu gisting í einsmannsherbergi með salerni og sturtu, fullt fæði og fjölbreytt dagskrá. Rafræn skráning hér fyrir neðan eða í síma 486 8870.

Verið hjartanlega velkomin á kyrrðardaga.

Sigríður Hrönn Sigurðardóttir

Sigríður Hrönn Sigurðardóttir