Lífsgangan
Helgina 19.-21. mars nk. verða haldnir kyrrðardagar undir yfirskriftinni Lífsgangan. Leiðbeinandi er séra Solveig Lára Guðmundsdóttir.
Þetta stef hefur verið afar vinsælt í kyrrðardagastarfinu hér á síðustu árum. Hvaðan komum við, hvar stöndum við og hvert stefnum við? Á þessum dögum erum við leidd um æviveginn og hvött til að hugleiða þann þroskaferil sem í lífsgöngunni felst. Vegferð manneskjunnar frammi fyrir Guði er eitt af þeim stefum sem koma til umræðu á þessum dögum.
Þessi dagskrá hefst kl. 18.00 á föstudegi og henni lýkur um kl. 14.00 á sunnudegi. Rafræn skráning hér eða í síma 486 8870.
Verið hjartanlega velkomin á kyrrðardaga.
Verð fyrir gistingu í einsmannaherbergi með salerni og sturtu og fullu fæði aðeins 17.000.- kr.


