Qi gong með kyrrðarívafi

Sérvalin mynd

Næstu helgi (12.-14. mars) verður Qi gong námskeið með kyrrðarívafi í Skálholti. Gunnar Eyjólfsson leikari leiðir þessa kyrrðardaga ásamt Birni Bjarnasyni fyrrv. alþingismanni og ráðherra. Dagskráin hefst síðdegis á föstudeginum kl. 14.00 og lýkur eftir hádegi á sunnudag. Séra Axel Árnason Njarðvík héraðsprestur í Suðurprófastsdæmi leiðir helgihald og býður upp á einkaviðtöl. Verið hjartanlega velkomin!

Félagið Aflinn gaf út kynningarmyndband um qi gong árið 2002. Þar segir meðal annars um Qi gong:

1. Qi gong er aðferð mannsins til öflunar, varðveislu og dreifingar orku um líkama sinn.
2. Qi er lífskraftur, hreyfiafl alheimsins. Maðurinn er kjarni, orka og vitund Vitundin stjórnar orkunni og orkan glæðir kjarnann.
3. Á íslensku er qi gong best lýst með orðinu ræktun. Iðkun qi gong á uppruna sinn austur í Kína og hefur þróast þar í aldanna rás.
4. Qi gong er þríþætt: hugleiðslu qi gong, bardaga- eða baráttu qi gong og heilsu qi gong. Undirstaðan er agaður líkamsburður – öguð öndun og öguð hugsun eða einbeitni.
5. Qi er afl. Qi gong er viðleitni einstaklinga til eigin orkuvæðingar. Iðkandinn gengur til móts við lífsorkuna, gengur henni skilyrðislaust á hönd og öðlast þegnrétt í ríki hennar.

Verð fyrir gistingu og fullt fæði með námskeiðsgjaldi eru aðeins kr. 17.000.- Rafræn skráning hér fyrir neðan eða í síma 486 8870.

Rafræn skráning á kyrrðardaga 23.-25. mars 2012

Fullt nafn (krafist)

Kennitala (krafist)

Netfang (krafist)

Símanúmer (a.m.k. eitt)

Fjöldi þátttakenda:

Skilaboð

Leggðu saman tvo og tvo = 
[Þetta er til að koma í veg fyrir ruslpóst]