Kent M. Keith í mars 2010

Sérvalin mynd

Dr. Kent M. Keith framkvæmdastjóri Greenleaf Center for Servant Leadership í Indianapolis í Bandaríkjunum býður upp á námskeið um þjónandi forystu í Skálholti helgina 5.-7. mars 2010. Hann hélt fyrirlestur á skálholtsráðstefnunni um þjónandi forystu 20. júní á síðasta ári. Vakti fyrirlestur hans mikla ánægju þátttakenda fyrir hrífandi framsögu og afburða framsetningu á hugmyndunum um þjónandi forystu. Dagskrá námskeiðsins verður kynnt hér á næstu dögum.

Mánudaginn 8. mars kl. 16.00 heldur Kent M. Keith opinberan fyrirlestur í Háskóla Íslands í boði viðskiptafræðideildar, hjúkrunarfræðideildar og guðfræði- og trúarbragðafræðideildar. Fyrirlesturinn verður nánar auglýstur þegar nær dregur.

Námskeiðið í Skálholti hefst á föstudegi kl. 18.00 og því lýkur um kaffileitið á sunnudegi.

Námskeiðskostnaður: Gisting og fullt fæði 17.000.- kr. Námskeiðsgjald: 10.000.- kr.

Hægt er að skrá sig rafrænt hér fyrir neðan, símleiðis í síma 486 8870 eða með netfanginu rektor[hjá]skalholt.is.

Rafræn skráning á kyrrðardaga 14. til 16. október 2011

Fullt nafn (krafist)

Kennitala (krafist)

Netfang (krafist)

Símanúmer (a.m.k. eitt)

Fjöldi þátttakenda:

Skilaboð

Leggðu saman tvo og tvo = 
[Þetta er til að koma í veg fyrir ruslpóst]