Vel sótt námskeið og nýr sálmur

Fjölmenni hefur verið á flestum námskeiðum í Skálholti í vetur. Það á ekki síst við um söngnámskeið Jóns Þorsteinssonar sem hafa verið afar vinsæl. Tómas Guðni Eggertsson organisti hefur tekið virkan þátt í námskeiðunum og spilað undir söng nemendanna. Þá hefur hann undirbúið og spilað í sunnudagsmessum í Skálholtsdómkirkju þar sem söngfólkið tekur þátt. Það er hluti af námskeiðahaldinu. Í guðsþjónustu sunnudaginn 31. janúar sl. var frumfluttur nýr sálmur. Tómas Guðni samdi lagið við texta Sigurbjargar Þrastardóttur rithöfundar. Þau tileinkuðu Skálholtsstað sálminn og færum við þeim bestu þakkir fyrir þeirra góða framlag.

Eins og segir í frétt hér á vefnum er næsta námskeið Jóns á dagskrá í maímánuði næstkomandi. Nú þegar hafa 15 manns skráð sig til þáttöku. Hér fyrir neðan er myndsyrpa af nýlegu námskeiði Jóns.