Kyrrðarvika dagana 20.-27. apríl
Dagana 20.-27. apríl nk. verða haldnir “lengri“ kyrrðardagar þar sem boðið er upp á sex daga dvöl í Skálholti að viðbættu komukvöldi (20. apríl) og brottfararmorgni (27. apríl). Þessir dagar eru í anda Ignatíusar frá Loyola og byggjast á riti hans „Andlegar æfingar“. Ignatíus var uppi á 16. öld, hann fæddist árið 1491 og lést 1556. Hann stofnaði hið kunna Jesúfélag (Societas Jesu, SJ).
Boðið hefur verið upp á sambærilega dagskrá á Friðarsetrinu í Holti og á Löngumýri. Leiðbeinendur eða „sálufélagar“ á þessum dögum eru Lister Tonge, Irene Vickers og Valfrid Botnen. Þau annast einstaklingsbundna andlega leiðsögn (spiritual direction).
Séra Vigfús Ingvar Ingvarsson segir í greinargerð um kyrrðardagana með andlegri leiðsögn í Holti (júlí 2007):
„Þessi dvöl byggði á hefð sem á rætur að rekja til Ignatiusar Loyola og Andlegra æfinga hans (Spiritual Exercises) en sú leiðsagnarhefð gekk á síðari hluta 20. aldar í mikla endurnýjun lífdaganna. Þeir sem veita slíka leiðsögn eru ekki lengur aðeins jesúítar og ekki heldur bara kaþólikkar og konur eru einnig mjög virkar í þeim hópi sem kallast á ensku spiritual directors (companions). Í svona kyrrðardvöl er mikið byggt á viðbrögðum við biblíutextum sem hver og einn íhugar og biður útfrá. Þátttakendur fá mikinn tíma útaf fyrir sig til bænar, íhugunar, lestrar, útivistar og jafnvel einhverrar listrænnar iðju en svona dvöl er mjög gefandi andlegt ferðalag en krefst vissulega nokkurrar staðfestu.“
Hámarksfjöldi þátttakenda er að þessu sinni 12 manns. Nú þegar hafa 6 manns skráð sig. Því eru enn 6 pláss laus. Verið hjartanlega velkomin á þessa daga. Þeir kosta aðeins 64.000.- kr. með öllu: Gisting í einsmanns hebergi með salerni og sturtu, fullu fæði og dagskrá. Við viljum benda áhugasömum á möguleikann á að sækja um styrki til dvalarinnar frá söfnuði eða héraðssjóði. Þá hafa stéttarfélög styrkt fólk til þátttöku í slíkri dagskrá.
Rafræn skráning fer fram hér að neðan. Einnig má hringja í síma 486-8870.
[contact-form 404 "Not Found"]

