Nærvera í heilbrigðisþjónustu
Dagana 31. maí – 2. júní nk. verður haldið námskeið í Skálholti undir yfirskriftinni Nærvera í heilbrigðisþjónustu – að mynda góð tengsl.
Sýnt hefur verið fram á að djúp mannleg tengsl hafa mikið að segja í meðferð og umönnun þeirra sem upplifa þjáningu og sorg til dæmis vegna áfalla, langvinnra veikinda og yfirvofandi dauða. Góð tilfinningatengsl og skilningur á líðan annarra byggist að stórum hluta á innsæi í eigin viðbrögð og líðan og því er mikilvægt að heilbrigðisstarfsfólk þroski með sér leiðir til að efla sjálfsþekkingu og vinna úr reynslu sinni.
Námskeiðið er hugsað fyrir fagfólk sem annast langveika sjúklinga og aðstandendur þeirra (til dæmis hjúkrunarfræðinga, sálfræðinga, félagsráðgjafa og presta) og miðar að því að auka færni þátttakenda í að mynda og viðhalda djúpum mannlegum tengslum og hlúa að eigin vellíðan í starfi. Kynntur verður fræðilegur bakgrunnur nærveru sem meðferðarforms auk þess sem þátttakendur fá tækifæri til að skoða eigin reynslu með ígrundun (reflection) og innsæisíhugun (mindfulness meditation).
Leiðbeinendur á námskeiðinu eru Anna Valdimarsdóttir sálfræðingur og Erna Haraldsdóttir hjúkrunarfræðingur.
Námskeiðið hefst á mánudegi kl. 18.00 og stendur fram á miðvikudag til kl. 16.00. Námskeiðsgjald kr. 13.000.- Dvalarkostnaður með fullu fæði kr. 23.000.- Heildarkostnaður er því aðeins kr. 36.000.- Staðfestingargjald kr. 6.000.- og greiðist fyrir 1. maí.
Rafræn skráning á námskeiðið hér fyrir neðan eða í síma 486 8870 (Skálholtsskóli).
- Dr. Erna Haraldsdóttir
- Anna Valdimarsdóttir
Anna Valdimarsdóttir sálfræðingur er höfundur bókanna Leggðu rækt við sjálfan þig og Leggðu rækt við ástina sem hlotið hafa verðskuldaða athygli og nú vinnur hún að bók um gjörhygli (mindfulness). Hún rekur eigin sálfræðistofu og starfar auk þess við kennslu, handleiðslu og námskeiðahald.
Dr. Erna Haraldsdóttir hjúkrunarfræðingur hefur starfað um árabil við líknarhjúkrun og tók þátt í uppbyggingu líknarmeðferðar á Íslandi. Hún lauk doktorsnámi við Háskólann í Edinborg þar sem hún rannsakaði nærveru sem hluta líknarmeðferðar og starfar nú við kennslu og rannsóknir í tengslum við líknarmeðferð i Skotlandi.




