Kórastarf í Skálholtsprestakalli

Nú hefjum við söngæfingar að nýju í Skálholti undir stjórn Jóns Bjarnasonar organista í Skálholtsprestakalli. Stefnum á öflugt söngstarf og byrjum æfingar 3. febrúar nk. Gert er ráð fyrir æfingum á miðvikudagskvöldum kl. 20:30. Æfð verður fjölbreytt efnisskrá og möguleiki á áframhaldandi samstarfi með kórum úr nágrenninu og víðar.

Óskum eftir fólki í allar raddir, tökum vel á móti nýju söngfólki og eflum saman sönglífið í Tungunum.

Verið hjartanlega velkomin!

Sóknanefndir Skálholtsprestakalls