Hljómeyki flytur Maríukvæði og Sólhjartarljóð
Laugardaginn 23. janúar nk. kl. 16:00 mun Sönghópurinn Hljómeyki flytja íslenska kirkjutónlist í Skálholtsdómkirkju. Á efnisskrá tónleikanna eru íslensk kórverk sem flutt hafa verið á liðnum árum af Hljómeyki á Sumartónleikum í Skálholti, en Hljómeyki hefur frá árinu 1986 sungið eina tónleika á hverju sumri þar sem frumflutt hafa verið ný íslensk kórverk.
Verkin sem flutt verða að þessu sinni eru: Ad beatam virginem eftir Báru Grímsdóttur, en það verk frumflutti Hljómeyki sumarið 1998. Þá verða flutt Agnus dei og Sólhjartarljóð úr Óttusöngvum á vori eftir Jón Nordal, en Hljómeyki flutti verkið í heild sinni sumarið 2007. Einsöngvarar í verkinu eru Hildigunnur Rúnarsdóttir, sópran og Lilja Dögg Gunnarsdóttir. Aðrir sem koma að flutningi þessa verks eru: Anna Tryggvadóttir, selló, Frank Aarnink, slagverk og Jón Bjarnason, orgel.
Þá verða flutt tvö minni verk á tónleikunum: Pater peccavi eftir Ólíver Kentish sem var frumflutt af Hljómeyki sumarið 2003 og sálmalagið Mér væri skyldugt að minnast á þrátt í útsetningu Elínar Gunnlaugsdóttur, en Hljómeyki flutti lagið við setningu Sumartónleikanna sumarið 1998.
Stjórnandi Sönghópsins Hljómeykis er Magnús Ragnarsson.
Tónleikarnir eru haldnir sem liður í sýningunni Endurreisn Skálholts sem stendur fram í apríl á þessu ári. Sýningin er opin á sunnudögum frá kl. 13.00-16.00. AÐGANGUR ER ÓKEYPIS Á TÓNLEIKANA.


