Helgileikur og séra Hjálmar Jónsson
Í gær sýndu nemendur Grunnskóla Bláskógabyggðar, Reykholti, helgileik í Skálholtsdómkirkju. Frú Arndís Jónsdóttir skólastjóri bauð gesti velkomna en umsjónarkennarar 1.-4. bekkjar höfðu undirbúið helgileikinn ásamt sóknarpresti, séra Agli Hallgrímssyni, og organista staðarins, Jóni Bjarnasyni. Athöfnin var afar hátíðleg enda kirkjan full af fólki sem gladdist með börnunum.
Þá var árleg samvera eldri borgara í Uppsveitum Árnessýslu í Skálholtsskóla í boði rektors. Um fimmtíu manns komu til samkomunnar sem heppnaðist í alla staða vel. Gestirnir skoðuðu meðal annars sýninguna Endurreisn Skálholts sem nú stendur yfir í skólanum. Heiðursgestur var séra Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur sem fór á kostum í bundnu og óbundnu máli. Hann las meðal annars upp úr nýútkominni bók sinni Hjartsláttur sem vakið hefur verðskuldaða athygli.
Myndirnar með þessari frétt tók Sigurður Sigmundsson blaðafulltrúi Morgunblaðsins í Uppsveitum.
- Sigurður, Böðvar og Guðmundur skoða sýninguna
- Sr. Hjálmar Jónsson flytur erindi
- Eldri borgarar skemmtu sér vel
- Helgileikurinn í Skálholtsdómkirkju






