Aðventutónleikar í Skálholtsdómkirkju
Næstkomandi laugardag, 12. desember, kl. 16.00, verða haldnir aðventutónleikar í Skálholtsdómkirkju. Allir kirkjukórar í uppsveitum Árnessýslu munu sameina krafta sína á þessum tónleikum og flytja fallega aðventu- og jólatónlist. Á tónleikunum munu börn úr Grunnskólanum á Laugarvatni og Reykholtsskóla einnig syngja. Einsöngvarar á tónleikunum eru allir úr röðum kórfélaga. Þeir eru: Haukur Haraldsson, Helga Kolbeinsdóttir, Henríetta Ósk Gunnarsdóttir og Þóra Gylfadóttir.
Stjórnendur kóranna skipta með sér verkum á tónleikunum en þau eru: Þorbjörg Jóhannsdóttir, Jón Bjarnason, Stefán Þorleifsson, Örlygur Atli Guðmundsson og Valgerður Jónsdóttir. Trompetleikur er í höndum Jóhanns Stefánssonar og flautuleikari er Jóhanna Höeg Sigurðardóttir.
Myndirnar með þessari frétt voru teknar á æfingu kóranna í Skálholtsdómkirkju.
Aðgangur er ókeypis! Verið hjartanlega velkomin á meðan húsrúm leyfir.




