Bandarískur prófessor sauðfjárbóndi á Íslandi
Dr. Michael Novak prófessor við Meredith College í Norður-Karólína í Bandaríkjunum var í viðtali í Fréttablaðinu í gær. Novak hefur leitt samstarf Meredith College og Skálholtsskóla vegna námsferða bandarískra stúdenta til Íslands. Þetta samstarfsverkefni hefur verið afar farsælt og er stefnt að framhaldi þess á næstu árum. Hér má sjá mynd af honum ásamt dr. Eloise Grathwohl enskukennara sem var með hópnum í sumar.
Hér á eftir er viðtalið í Fréttablaðinu sem birtist undir yfirskriftinni: Bandarískur prófessor gerist sauðfjárbóndi á Íslandi:
Michael er fæddur og uppalinn í Ohio og stundaði nám í miðaldasögu Evrópu við Harvard-háskóla en starfar nú sem prófessor við Meredith College í Norður-Karólínu. Michael segir að eftir fyrstu heimsókn sína til landsins hafi hann tekið upp á því að lesa Iceland Review Online daglega og þar rakst hann á grein þar sem fjallað var um Kindur.is. „Ég dvaldi sjálfur mikið í sveit sem barn og kynntist þá búskap en það sem heillaði mig einna mest við Kindur.is var hugmyndafræðin að baki verkefninu, að bæta aðgang borgarbúa að sveitinni. Í kjölfarið ákvað ég að gerast sauðfjáreigandi á Íslandi og keypti strax tvær kindur, Eygló og Laylu. Stuttu síðar keypti ég þriðju kindina, Úu, og síðan þá hafa þrjú lömb bæst við sauðaflokkinn minn,“ útskýrir Michael.
Til gamans má geta þess að það kostar 39.500 krónur á ári að eiga kind, en fyrir þá upphæð fær eigandinn einn til tvo skrokka á ári og ull, auk þess sem honum er boðið að taka þátt í réttum á haustin.
Í kjölfar Íslandsheimsóknarinnar kom Michael á samstarfsverkefni milli Meredith College og Skálholtsskóla í Biskupstungum. Síðastliðin tvö ár hefur hann ásamt samkennara sínum heimsótt Skálholt með hóp af nemendum. „Fyrsti hópurinn kom hingað í fyrrasumar og dvaldi hér í mánuð. Nemendurnir sóttu meðal annars námskeið í sögu og bókmenntum auk þess sem þau kynntust landi og þjóð. Hlédís Sveinsdóttir, stofnandi Kindur.is, bauð mér og nemendum mínum í heimsókn til sín það sumar og þá fékk ég að hitta kindaflokkinn minn í fyrsta sinn. Nemendur mínir urðu bæði hissa og óttaslegnir þegar ég skreið inn í króna til kindanna, þannig að ætli megi ekki segja að ég sé eins virkur sauðfjáreigandi og Bandaríkjamaður getur orðið,“ segir Michael og hlær.
Aðspurður segir hann íslenskt lambakjöt vera einstaklega gott á bragðið, en hann og nemendur hans fengu að bragða á því í heimsókninni til Hlédísar. „Mér þykir íslenska lambakjötið besta kjöt sem ég hef á ævinni smakkað og Ísland fallegasta land sem ég hef nokkru sinni komið til,“ segir Michael að lokum.sara
@frettabladid.is


