Kyrrðardagar 19.-21. febrúar

Sérvalin mynd

Næstu kyrrðardagar í Skálholti verða helgina 19.-21. febrúar nk. undir yfirskrift Þjónandi forystu. Kyrrðardagarnir eru helgaðir ígrundun lykilatriðanna sjö í þjónandi forystu þar sem leitast verður við að dýpka skilning á hlutverki fólks í lífi og starfi. Lykilatriðin byggjast á hugmyndum Roberts Greeleafs og bók framkvæmdastjóra Greenleaf-miðstöðvarinnar, Kents M. Keith. Sjá nánar á vefsíðunni www.thjonandiforysta.is. Þess má geta að í byrjun marsmánaðar kemur Kent M. Keith til Íslands til að halda námskeið um Þjónandi forystu í Skálholti og flytja fyrirlestur um efnið í hátíðarsal Háskóla Íslands (sjá frétt á vefnum). Verð kr. 17.000.- í eins manns herbergi með salerni og sturtu og fullu fæði.

Umsjón hafa dr. Sigrún Gunnarsdóttir hjúkrunarfræðingur, Ólafur Egilsson lögfræðingur og fyrrv. sendiherra og Harpa Hallgrímsdóttir starfsmaður Skálholtsstaðar. Rafræn skráning á vefnum okkar www.skalholt.is eða með netfanginu rektor@skalholt.is.

Rafræn skráning á kyrrðardaga 19.-23. nóvember 2010

Fullt nafn (krafist)

Kennitala (krafist)

Netfang (krafist)

Símanúmer (a.m.k. eitt)

Fjöldi þátttakenda:

Skilaboð

Leggðu saman tvo og tvo = 
[Þetta er til að koma í veg fyrir ruslpóst]