Kristin íhugun og fyrirgefning

Sérvalin mynd

Helgina 22.-24. janúar nk. verður boðið upp á kyrrðardaga með kristinni íhugun (centering prayer) með áherslu á fyrirgefninguna og altarissakramentið. Umsjón hafa séra Elínborg Gísladóttir sóknarprestur í Grindavík og Sigurbjörg Þorgrímsdóttir djáknaefni og leiðbeinandi.

Verð fyrir gistingu hér í Skálholti í einsmannsherbergi með salerni og sturtu í fullu fæði aðeins 17.000.- kr.

Rafræn skráning hér. Einnig er hægt að skrá sig í síma 486 8870 eða með netfanginu rektor[hjá]skalholt.is.

Verið hjartanlega velkomin!