Feldenkrais fyrir alla!

Sérvalin mynd

Helgina 8.-10. janúar nk. verður haldið Feldenkrais-námskeið með kyrrðarívafi í Skálholti. Um er að ræða sérstakar æfingar sem byggjast á hópkennsluaðferð dr. Moshe Feldenkrais (1904-1984) sem snýst um skynjun gegnum hreyfingu. Feldenkrais sýndi fram á hvernig áreynslulaust má auka hreyfigetu líkamans. Markmiðið er að fólk læri fleiri hreyfingar, stellingar eða stöður við hvaðeina sem það tekur sér fyrir hendur og minnki þannig álagið á líkamann sem liðkast og verður meðfærilegri. Samfara því eykst andleg vellíðan. Dagskráin hefst á föstudegi kl. 14.00!

Umsjón hefur Sibyl Urbancic (mynd) frá Vínarborg.

Fjölmargir Íslendingar stunda Feldenkrais og hefur Sibyl reglulega boðið upp á námskeið í Reykjavík og Skálholti á undanförnum árum. Verð fyrir gistingu hér í Skálholti í einsmannsherbergi með salerni og sturtu í fullu fæði aðeins 17.000.- kr.

Rafræn skráning hér. Einnig hægt að skrá sig í síma 486 8870 eða með netfanginu rektor[hjá]skalholt.is.

Allir geta stundað Feldenkrais! Verið hjartanlega velkomin.