Veirurnar í Skálholtsdómkirkju
Sönghópurinn Veirurnar mun halda aðventutónleika í Skálholtsdómkirkju miðvikudagskvöldið 2. desember næstkomandi og hefjast þeir kl. 20.30. Tilefnið er útgáfa nýs geisladisks sem kominn er í dreifingu og inniheldur 17 gullfalleg jólalög.
Veirurnar eru Sunnlendingum að góðu kunnar en sönghópurinn hefur komið hér fram á nokkrum skemmtunum, meðal annars með Karlakór hreppamanna, Vörðukórnum, Jórukórnum og við ýmis önnur tækifæri. Meðlimir hópsins eiga flestir rætur að rekja í Skagafjörðinn en einnig eru í þeirra röðum fólk úr uppsveitum Árnessýslu. Söngstjóri undanfarin tvö ár er Guðbjörg R. Tryggvadóttir.
Fyrstu helgina í aðventu verða Veirurnar á ferðalagi norður í landi og halda tónleika í Blönduóskirkju og Miklabæjarkirkju í Skagafirði.
Ókeypis er á tónleikana í Skálholti og eru allir hvattir til að koma og fá jólastemmninguna beint í æð.


