Íhugun og slökun á aðventu
Helgina 4.-6. desember nk. verða haldnir kyrrðardagar hér með áherslu á hreyfingu, slökun og kyrrð. Íhugunar- og fræðslustundir um boðskap jólaföstunnar og hina innri göngu pílagrímanna og annarra sem búa sig undir fæðingarhátíð frelsarans. Boðið verður upp á öndunar- og slökunaræfingar og tónlistarstund í kirkjunni. Umsjón hafa Anna Ingólfsdóttir jógakennari og Pétur Pétursson prófessor.
AÐEINS TVÖ LAUS HERBERGI! Verð: 17.000 kr.
Rafræn skráning hér eða í síma 486 8870.
Verið hjartanlega velkomin á kyrrðardaga!


