Kammerkór frá Bodal

Sérvalin mynd

Næstkomandi föstudag, 16. október, kl. 20.30, heldur Kammerkórinn frá Bodal í Svíþjóð tónleika í Skálholtsdómkirkju ásamt Kammerkór Mosfellsbæjar. Kirkjan í Bodal er ein af fjórum höfuðkirkjum í Lidingeyjarsókn sem tilheyrir Stokkhólmsbiskupdæmi. Bodal kammerkórinn er blandaður kór með um það vil 25 söngvara. Stjórnandi kórsins er Ingrid Damstedt Holmberg. Ókeypis aðgangur. Verið hjartanlega velkomin.

Lidingeya liggur innarlega í skerjagarði Stokkhólms um það bil 10 km norðaustur af miðborg Stokkhólms. Lidingeyjarborg er um 30 ferkílómetrar að flatarmáli með rétt tæpa 49.000 íbúa. Borgin nær yfir Lidingeyju og teygir sig yfir nokkrar minni eyjar í nágrenninu. Á eyjunni eru minjar um byggð allt frá 600 f.Kr.

Kammerkórinn frá Bodal heldur einnig tónleika á Akranesi nk. fimmtudagskvöld, kl. 20.30, ásamt Kammerkór Akraness og á laugardag í Landakotskirkju í Reykjavík, kl. 16.00, ásamt Kammerkór Mosfellsbæjar. 

Á efnisskrá tónleikanna eru eftirfarandi verk:

  • Alta trinita beata (Anonymus)
  • Deo dicamus gratias (G.A. Homilius)
  • Uti vår hage (H Alfvén)
  • Sofðu unga ástin mín (úts. Jón Ásgeirsson)

Úr “Jazzmessu“: 

  • Min längtan (A.-C. Janunger / K. Janungar)
  • Shall I compare (W. Shakespeare / N. Lindberg)
Úr “Förklädd Gud”: 
  • Vem spelar på en pipa (H. Gullberg / L.-E. Larsson)
  • Bjuder ett mänskoöga (H. Gullberg / L.-E. Larsson)
  • Genom varje andetag (A. Widmark)
  • Tillägnan (L. Forssell / M. Dominique)
Úr Cancionero de Uppsala:
  • Soy serrannica (Anonymus)
  • Rest, sweet Nymphs (F. Pilkington)
Úr “Leva i världen“:
  • Agnus Dei (S. Säfsten)
Úr “Mässa i staden“:
  • Benedicamus (C. Lövestam / A. Cederberg-Orreteg)
  • Peace I leave with you (Jóh. 14:27 / K. Nystedt)
  • Och jungfrun (H. Alfvén)